Bæjarráð - 3728
- Kl. 08:15 - 10:00
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3728
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Gunnar Gíslason
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Stytting vinnuviku dagvinnufólks
Málsnúmer 2021041143Umfjöllun um styttingu vinnuviku dagvinnufólks 1. janúar 2021.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Norðurgata 45 - sala
Málsnúmer 2021041494Lagt fram gagntilboð varðandi sölu á Norðurgötu 45 e.h.
Dan Jens Brynjarsson sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tilboðið.
Gatnagerðargjöld 2021
Málsnúmer 2020120094Liður 1 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 26. maí 2021:
Lagt fram minnisblað með tillögum að breytingu á gr. 4.3 í gjaldskrá gatnagerðargjalda.
Skipulagsráð leggur til við bæjarráð að breyting verði gerð á gjaldskrá gatnagerðargjalda þannig að gjald hækki og verði fyrir parhús-raðhús 15%, fyrir fjölbýlishús 12,5% og gerður verði nýr liður fyrir sameiginlega bílakjallara fjöleignahúsa og gjald verði 5%.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsráðs fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
SSNE - samtal við sveitarfélög
Málsnúmer 2021050362Kynning Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra á nýuppfærðri sóknaráætlun samtakanna.
Silja Jóhannesdóttir og Rebekka Kristín Garðarsdóttir verkefnastjórar og Baldvin Valdemarsson sviðsstjóri hjá SSNE mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið í gegnum fjarfundabúnað.Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.
Minjasafnið á Akureyri - aðalfundur 2021
Málsnúmer 2021050795Erindi dagsett 18. maí 2021 frá Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra f.h. stjórnar Minjasafnsins á Akureyri. Í erindinu er boðað til aðalfundar safnsins miðvikudaginn 2. júní nk. kl. 15:00 í norðursal Minjasafnsins á Akureyri, Aðalstræti 58.
Bæjarráð felur Kristni J. Reimarssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis, 612. mál
Málsnúmer 2021050844Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. maí 2021 frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis, 612. mál 2021.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/1060.htmlTillaga til þingsályktunar um um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
Málsnúmer 2021050924Lagt fram til kynningar erindi dagsett 19. maí 2021 frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál 2021.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/1100.htmlTillaga til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraðra, 720. mál
Málsnúmer 2021050925Lagt fram til kynningar erindi dagsett 19. maí 2021 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraðra, 720. mál 2021.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/1199.html