Fræðsluráð - 61
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 61
Nefndarmenn
- Þorlákur Axel Jónssonformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Heiðrún Ósk Ólafsdóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Dagný Björg Gunnarsdóttirvaramaður foreldra leikskólabarna
- Daníel Sigurður Eðvaldssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Jóhanna María Agnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Marthen Elvar Veigarsson Olsenvaramaður fulltrúa leikskólakennara
Samþætting þjónustu barna
Málsnúmer 2021110226Helga Vilhjálmsdóttir verkefnastjóri innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu innleiðingarinnar.
Skýrsla MSHA um sérúrræði í grunnskólum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021091604Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir framkvæmd þeirra aðgerða sem lagðar eru til í skýrslu Miðstöðvar skólaþróunar HA um sérúrræði í grunnskólum.
Fylgiskjöl
Nemendafjöldi - þróun næstu ára
Málsnúmer 2021051468Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs og Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar lögðu fram til kynningar minnisblað um hugsanlega þróun nemendafjölda í leik- og grunnskólum fram til ársins 2027.
Fylgiskjöl
Skólahald í Grímseyjarskóla
Málsnúmer 2019050385Tillaga var lögð fyrir fundinn um að reglur um skólagöngu nemenda í Grímsey frá 11. október 2010 sem samþykktar voru af skólanefnd Akureyrarbæjar verði felldar úr gildi.
Afgreiðslu frestað eftir umræður.
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2022-2025
Málsnúmer 2021090517Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir umbótaverkefnum vegna hagræðingarkröfu sem gerð er til málaflokks fræðslumála fyrir árið 2022.
Fundaáætlun fræðsluráðs
Málsnúmer 2019110153Tillaga að fundaáætlun fræðslu- og lýðheilsuráðs fyrir árið 2022 lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir samhljóða framlagða fundaáætlun fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
Heilsuefling - starfshópur
Málsnúmer 2020100021Þuríður Sólveig Árnadóttir gerði grein fyrir tillögum starfshóps um heilsueflingu í skólum.
Fræðsluráð beinir því til sviðsstjóra fræðslusviðs að tillögurnar verði kynntar enn frekar fyrir skólastjórum leik- og grunnskóla.