Umhverfis- og mannvirkjaráð - 148
- Kl. 11:30 - 15:37
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 148
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023081139Lagðar fram fjárhagsáætlanir, stöðuskýrslur og starfsáætlanir fyrir Slökkvilið Akureyrar, Hlíðarfjall, Bifreiðastæðasjóð Akureyrar, Umhverfis- og úrgangsmál, Fasteignir Akureyrarbæjar, Leiguíbúðir Akureyrar, Götur og stíga, Skrifstofu umhverfis- og mannvirkjasviðs, Umhverfismiðstöð og Strætisvagna Akureyrar.
Andri Teitsson L-lista og Einar Þór Gunnlaugsson M-lista samþykkja starfs- og fjárhagsáætlanir fyrir sitt leyti og vísa þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Óskar Ingi Sigurðsson B-lista sitja hjá.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista og Óskar Ingi Sigurðsson B-lista óska bókað:
Framkvæmdaáætlun liggur ekki fyrir og starfs- og fjárhagsáætlanir eru ekki fullgerðar í einhverjum tilfellum. Þess utan hefur ekki verið samþykkt aðgerðaáætlun í umhverfis- og loftslagsmálum og því erfitt að átta sig á því hvaða verkefnum á að sinna á næsta ári. Þar af leiðandi er varla hægt að taka afstöðu til starfs- og fjárhagsáætlana þegar heildarmyndin liggur enn ekki fyrir.