Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 905
- Kl. 11:00 - 11:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 905
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023020889Erindi dagsett 17. febrúar þar sem Ágúst Hafsteinsson sækir um, fyrir hönd Akureyrarbæjar, byggingaráform og byggingarleyfi í húsi nr. 16 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Árstígur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021020605Erindi dagsett 22. febrúar 2023 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 2 við Árstíg.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórunnarstræti 138 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021060011Erindi dagsett 24. febrúar 2023 frá Gísla Jóni Kristinssyni þar sem hann fyrir hönd Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hafnarstræti 29 - umsókn um byggingarleyfi, endurbætur og fjölgun íbúða
Málsnúmer 2023010367Erindi dagsett 9. janúar 2023 þar sem Sigríður Arngrímsdóttir fyrir hönd Fala ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 29 við Hafnarstræti og fjölgun íbúða úr 3 í 6. Innkomnar nýjar teikningar 27. febrúar 2023.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.