Velferðarráð - 1346
- Kl. 14:00 - 15:20
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1346
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Guðrún Karitas Garðarsdóttir
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Velferðarráð - gjaldskrá fyrir félagslegt húsnæði 2021-2022
Málsnúmer 2021111421Lagt fram minnisblað dagsett 30. nóvember 2021, unnið í samvinnu velferðar- og fjársýslusviðs sem fjallar um leiguíbúðir Akureyrarbæjar, leigufjárhæðir og greiningar.
Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúi og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanadeildar sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir framkomna tillögu um hækkun leiguverðs leiguíbúða bæjarins um 4% í samræmi við aðrar gjaldskrárhækkanir bæjarins frá og með 1. febrúar 2022 og vísar málinu til bæjarráðs.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2021
Málsnúmer 2021031922Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs fyrstu 10 mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagsaðstoð 2021
Málsnúmer 2021031923Lagt fram til kynningar yfirlit útgjalda fjárhagsaðstoðar fyrstu 10 mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Afskriftir lána 2021-2025
Málsnúmer 2021111395Lögð fram tillaga um afskriftir lána að upphæð kr. 2.047.854.
Velferðarráð samþykkir tillöguna um afskriftir lána og vísar málinu til bæjarráðs.
Sjónarhóll - styrkbeiðni
Málsnúmer 2021110343Lögð fram beiðni frá Sjónarhóli dagsett 5. nóvember 2021 um styrk að upphæð 1 m.kr.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.
Stígamót - styrkbeiðni fyrir árið 2022
Málsnúmer 2021110391Lagt fram erindi frá Stígamótum dagsett 3. nóvember 2021 þar sem óskað er eftir fjárstuðningi fyrir árið 2022.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Lögð fram áætlun um fundi velferðarráðs fyrri hluta árs 2022.
Velferðarráð samþykkti framlagða tillögu um fundaáætlun fyrri hluta ársins 2022.