Umhverfis- og mannvirkjaráð - 146
- Kl. 08:15 - 10:45
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 146
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Sjávarhæð og flóð á Akureyri
Málsnúmer 2022091192Lagt fram minnisblað dagsett 15. september 2023 vegna stöðu sjóvarna Akureyrarbæjar.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því við bæjarlögmann að tekin verði saman helstu atriði er varða eignarhald og ábyrgð á sjóvörnum á skilgreindum hafnarsvæðum.
Snjómokstur 2023-2026
Málsnúmer 2023080469Umræða vegna vetrarþjónustu í Hrísey og Grímsey.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að ræða við Vegagerðina um vetrarþjónustu á vegum Vegagerðarinnar í Hrísey og Grímsey. Við yfirtöku Vegagerðarinnar á vetrarþjónustu er mikilvægt að þjónustustig haldist óbreytt.
Áramótabrenna 2023
Málsnúmer 2023090574Lagt fram minnisblað dagsett 13. september 2023 vegna áramótabrennu í bæjarlandinu.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á það að haldin verði áramótabrenna á Akureyri sem uppfyllir kröfur reglugerðar og felur starfsmönnum að útfæra það í samráði við hagaðila.
RAPTOR verkefni
Málsnúmer 2023090573Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála kynnti nýsköpunarverkefni varðandi samþættingu vistvænna ferðamáta á Akureyri, sem er hluti af Raptor verkefninu.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Síðuskóli - lóð
Málsnúmer 2023020428Staða framkvæmda á lóð Síðuskóla kynnt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir yfir ánægju með framkvæmdina.
Strætisvagnar Akureyrar - kaup á vagni
Málsnúmer 2023060064Lagt fram minnisblað dagsett 15. september 2023 varðandi kaup á nýjum strætisvagni.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs og fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2024 kaupum á nýjum dísilknúnum strætisvagni að upphæð kr. 37 milljónir. Vagninn er til afhendingar í janúar 2024 og leysir úr brýnni þörf fyrir endurnýjun vegna hárrar bilanatíðni eldri vagna.
Jana Salóme I. Jósepsdóttir V-lista og Óskar Ingi Sigurðsson B-lista sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023081139Gjaldskrár UMSA lagðar fyrir ráðið.