Íþróttaráð - 195
- Kl. 14:00 - 15:47
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 195
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Íþróttaráð 2016 - önnur mál
Málsnúmer 2016020029Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mætti til viðræðana við ráðið.
Vetraríþróttamiðstöð Íslands - tilnefning fulltrúa í stjórn 2016-2020
Málsnúmer 2016020192Á fundi sínum 3. mars 2016 gerði bæjarráð eftirfarandi bókun:
Erindi dagsett 17. febrúar 2016 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vísað er til ákvæða 4. gr. reglugerðar nr. 362/1995 um Vetraríþróttamiðstöð Íslands og óskað eftir að Akureyrarbær tilnefni tvo fulltrúa og tvo varafulltrúa í stjórn Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands til næstu fjögurra ára. Skipunartími stjórnar rennur út 1. mars 2016. Samkvæmt reglugerðinni er annar fulltrúi Akureyrarbæjar formaður stjórnar.
Óskað er eftir með skírskotun til 15. gr. laga nr. 10/2008 að tilnefndir verði fjórir einstaklingar, tveir karlar og tvær konur. Ráðherra skipar í stjórnina og velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
Bæjarráð tilnefnir Siguróla Magna Sigurðsson og Þórunni Sif Harðardóttur sem aðalmenn og Ingibjörgu Ólöfu Isaksen og Jónas Björgvin Sigurbergsson til vara.Lagt fram til kynningar.
Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur - úthýsing
Málsnúmer 2014050114Farið yfir stöðuna á vinnu við mögulega úthýsingu Hlíðarfjalls. Lögð fram samantekt frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar varðandi úthýsingu Hlíðarfjalls. Einnig lagt fram til kynningar yfirlit frá Karli Guðmundssyni um rekstur Hlíðarfjalls 2009-2015.
Íþróttaráð þakkar Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar fyrir samantektina.
Íþróttaráð leggur til að skoðaðir verði möguleikar á að fara í úthýsingu á rekstri Hlíðarfjalls til lengri tíma og í samræmi við tillögur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
Íþróttaráð vísar erindinu til bæjarráðs.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Í samræmi við niðurstöðu aðgerðarhóps bæjarráðs eru lagðar fram tillögur að viðauka við gildandi fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlagða viðauka við gildandi fjárhagsáætlun og vísar erindinu til bæjarráðs.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Lagðar fram tillögur að viðauka við gildandi fjárhagsáætlun yfirstandandi árs vegna endurnýjunar rekstrarsamninga við aðildarfélög ÍBA á árinu 2016.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlagðan viðauka við gildandi fjárhagsáætlun og vísar erindinu til bæjarráðs.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Lögð fram til kynningar rekstrarstaða fjárhagsáætlunar íþróttaráðs fyrir janúar til og með júlí 2016.
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Unnið að fjárhagsáætlun íþróttaráðs starfsárið 2017.