Skólanefnd - 18
- Kl. 13:30 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 18
Nefndarmenn
- Dagný Þóra Baldursdóttirvaraformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Pétur Maack Þorsteinsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Niðurstöður rannsóknar á viðhorfum nemenda sem höfðu stundað nám í sérskóla
Málsnúmer 2016100190Deborah Júlía Robinson mætti á fundinn og kynnti niðurstöður meistararitgerðar sinnar "I was treated like a person and not a lost cause" - young people´s experience of an alternative to school exclusion.
Skólanefnd þakkar Deboru kærlega fyrir greinargóða og áhugaverða kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.
Beiðni um umsögn á skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar í Hlíðahverfi á Akureyri
Málsnúmer 2016090116Skólanefnd óskaði eftir því við Bjarka Jóhannesson skipulagsstjóra Akureyrarbæjar að koma á fundinn og fara yfir hugmyndir um deiliskipulag á Melgerðisreit í framhaldi af umfjöllun á fundi skólanefndar þann 19. september sl. (2. liður).
Bjarki mætti á fundinn, kynnti málið og fór einnig stuttlega yfir aðalskipulag fyrir Akureyrarbæ sem er í vinnslu.
Skólanefnd þakkar Bjarka fyrir kynninguna.
Endurbætur á húsnæði Hlíðarskóla
Málsnúmer 2016110012Starfsemi Hlíðarskóla er mikilvægur þáttur í þjónustu við grunnskólabörn í Eyjafirði. Ljóst er að þörf fyrir þá sértæku þjónustu sem þar er veitt er ekki að minnka, fremur að aukast. Því er mikilvægt að bregðast við og gera endurbætur á því húsnæði sem er til staðar svo hægt sé að nýta það til fulls. Er í þessu sambandi horft til austurenda stærsta hússins sem nú er nýtt í annað fyrir Akureyarbæ. Mikilvægt er fyrir skólastarfið í Hlíðarskóla að fá þetta húsnæði til notkunar. Vísað er í því sambandi til greinargerðar Bryndísar Valgarðsdóttur skólastjóra Hlíðarskóla dagsett 2. nóvember 2016.
Gert er ráð fyrir 10 milljónum króna á árinu 2017 og 30 milljónum á árinu 2018 til framkvæmdanna.Skólanefnd samþykkir að farið verði í breytingarnar, ábyrgist þannig aukna leigu á húsnæðinu í kjölfar þeirra og vísar málinu til Fasteigna Akureyrarbæjar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Rekstur fræðslumála 2016
Málsnúmer 2016030017Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir stöðu á rekstri fræðslumála fyrir tímabilið janúar-september 2016.
Fjárhagsaætlun fræðslumála 2018-2020
Málsnúmer 2016110011Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir þriggja ára áætlun fræðslumála.
Skólanefnd samþykkir framlagða þriggja ára áætlun og vísar henni til bæjarráðs.