Bæjarráð - 3376
- Kl. 09:00 - 10:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3376
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Hlín Bolladóttir
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Ragnar Sverrissonáheyrnarfulltrúi
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Langtímaáætlun - Heilsugæslustöðin á Akureyri
Málsnúmer 2013080018Unnið að langtímaáætlun vegna Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.\nMargrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK, Inda Björk Gunnarsdóttir formaður félagsmálaráðs og Karl Guðmundsson verkefnastjóri mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu málið.

Bæjarráð þakkar kynninguna.

Jafnframt þakkar bæjarráð Margréti Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra HAK, sem lætur af störfum um næstu mánaðamót, fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum
Málsnúmer 2010060027Lögð fram tillaga D-lista um breytingar á skipan áheyrnarfulltrúa í íþróttaráði:\nRagnheiður Jakobsdóttir tekur sæti áheyrnarfulltrúa í stað Önnu Jennýjar Jóhannsdóttur og Anna Jenný Jóhannsdóttir tekur sæti varaáheyrnarfulltrúa í stað Bergs Þorra Benjamínssonar.\n\nBæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 7. lið fundargerðar bæjarstjórnar 4. júní 2013.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lagðar fram til kynningar fundargerðir 242. og 243. fundar stjórnar Eyþings dags. 17. maí og 17. júlí 2013.

Eyþing - heimild fyrir yfirdráttarláni vegna almenningssamgangna
Málsnúmer 2013070128Erindi dags. 25. júlí 2013 frá Pétri Þór Jónassyni framkvæmdastjóra Eyþings þar sem hann óskar eftir heimild aðildarsveitarfélaga Eyþings til stjórnar Eyþings til að taka yfirdráttarlán að upphæð allt að 10 mkr. Óskað er eftir að svar berist Eyþingi ekki síðar en 20. ágúst nk.

Bæjarráð frestar afgreiðslu þar til svör frá innanríkisráðuneytinu liggja fyrir.

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri - ársreikningur 2012
Málsnúmer 2013070129Lagður fram til kynningar ársreikningur Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri fyrir árið 2012.

Önnur mál
Málsnúmer 2013010046Sigurður Guðmundsson A-lista óskaði eftir að starfsmannastjóri kæmi inn á fund bæjarráðs við fyrsta tækifæri til að ræða áherslur í komandi kjaraviðræðum.