Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 655
- Kl. 13:00 - 14:20
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 655
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill byggingarfulltrúa
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Krókeyrarnöf 7 - umsókn um breytingar
Málsnúmer BN070562Erindi dagsett 17. nóvember 2017 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd Hjálmars Haukssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 7 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Sjávargata 4, mhl.08 - umsókn um byggingarleyfi vegna tæknirýma á þaki
Málsnúmer 2017110205Erindi dagsett 17. nóvember 2017 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Bústólpa ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir stækkunum á tæknirýmum á þaki á húsi nr. 4 við Sjávargötu, matshluta 08. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Laxagata 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2017110107Erindi dagsett 8. nóvember 2017 þar sem Hermann Beck og Elísabet Karlsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 2 við Laxagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Þorvald Jónsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Brekkugata 4 - einbýlishúsi breytt í gistiheimili
Málsnúmer 2017110116Erindi dagsett 8. nóvember 2017 þar sem Daníel Snorrason fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf. sækir um breytingu á skráningu húseignar nr. 4 við Brekkugötu úr einbýlishúsi í gistiheimili. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa hafnar erindinu eins og það liggur fyrir, þar sem húsnæðið uppfyllir ekki ákvæði reglugerðar um gistihús í notkunarflokki 4 með vísan til athugasemda á fylgiblaði.