Fræðsluráð - 3
- Kl. 13:30 - 15:05
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Einar Gauti Helgasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Eftirfylgd með kennslustundum í list- og verkgreinum
Málsnúmer 2019010099Úttekt frá Menntamálastofnun dagsett 3. janúar 2019 um fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum í grunnskólum Akureyrar lögð fram til umræðu.
Málinu frestað þar til allar upplýsingar liggja fyrir.
Skóladagatal leik- og grunnskóla 2019-2020
Málsnúmer 2019010117Lögð var fram til samþykktar tillaga að verklagsreglum fræðsluráðs við gerð skóladagatals leik- og grunnskóla.
Tillagan samþykkt.
Þórhallur Harðarson D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.Spurningakönnun og vettvangsheimsóknir vegna framkvæmdar náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum
Málsnúmer 2018100252Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 22. janúar 2019 um fyrirhugaða könnun vegna framkvæmdar náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum lögð fram til kynningar.
Í fjármálaáætlun ríkisins fyrir tímabilið 2018-2022 er sett fram markmið um að skoða gæði og umfang náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum. Réttur nemenda í grunnskólum til að njóta náms- og starfsráðgjafar er bundinn í lögum nr. 91/2008 um grunnskóla. Lögin segja hins vegar ekki fyrir um í hverju sú þjónusta skuli vera fólgin eða hversu aðgengileg og umfangsmikil þjónustan skuli vera.
Farið verður í vettvangsheimsóknir í fimm grunnskóla á landinu þ.á.m. í Síðuskóla.Fylgiskjöl
Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda
Málsnúmer 2019010347Lagt fram til kynningar bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 23. janúar 2019 um áform stjórnvalda að kennarar afli sér kennsluréttinda í námi sínu óháð tilteknu skólastigi með einu grunnleyfisbréfi. Komin eru inn á samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Opið er fyrir samráð og umsagnir til 4. febrúar.
Fylgiskjöl
Rekstur fræðslumála 2018
Málsnúmer 2018030030Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar stöðu rekstrar fræðslumála fyrir árið 2018.