Fræðsluráð - 22
- Kl. 13:30 - 14:57
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 22
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Marsilía Dröfn Sigurðardóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Staðfesting á skólasókn
Málsnúmer 2018100121Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs sbr. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er ,,að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu."
Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar og Karl Frímannsson sviðsstjóri lögðu fram greinargerð um málið.Öll skólaskyld börn með lögheimili á Akureyri njóta lögboðinnar fræðslu skv. lögum.
Fylgiskjöl
Búnaðarkaup fyrir skólana árin 2016-2020
Málsnúmer 2016030144Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar hvernig staðið er að úthlutun fjár til búnaðarkaupa í leik-, grunn- og tónlistarskóla.
Skólaval grunnskóla 2015-2020
Málsnúmer 2017010171Sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram tillögu að endurskoðun á núgildandi reglum um skólaval.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að ganga frá endanlegri tillögu að skólavali fyrir næsta fund.
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022
Málsnúmer 2018060289Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar breytingar á fyrstu drögum að fjárhagsáætlun fræðslumála 2019-2022.
Sumarlokun leikskóla 2018-2020
Málsnúmer 2017100035Bókun fræðsluráðs frá 9. október 2017 um sumarlokun í leikskólum var lögð fram til kynningar.
Sviðsstjóra er falið að undirbúa viðhorfskönnun meðal foreldra og starfsfólks í leikskólum vegna fyrirkomulags á sumarlokunum.
Fylgiskjöl
Leikskólabygging við Glerárskóla
Málsnúmer 2017120010Formaður fræðsluráðs gerði grein fyrir stöðunni við hönnun leikskólabyggingar á Glerárskólareit. Ráðgert er að byggingin verði tekin í notkun haustið 2021.