Félagsmálaráð - 1178
- Kl. 14:00 - 16:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1178
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Valur Sæmundsson
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Valdís Anna Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Karl Guðmundssonframkvæmdastjóri
- fundarritari
Fjárhagsaðstoð 2014 - breyting á framfærslugrunni
Málsnúmer 2014010188Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið. Lagt var fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 16. janúar 2014 um breytingu á framfærslugrunni í fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar um 4,15% í samræmi við hækkun neysluvísitölu frá desember 2012 til desember 2013. Málinu vísað til bæjarráðs.

Reglur félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 2010010047Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild kynntu drög að breytingum á reglum félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir breyttar reglur með athugasemdum sem gerðar voru á fundinum og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Búsetudeild - áfrýjanir 2014
Málsnúmer 2014010230Lögð fram áfrýjun vegna synjunar á félagslegri heimaþjónustu, mál nr. 2013120010.\nBergdís Ösp Bjarkadóttir, forstöðumaður heimaþjónustu A lagði fram greinargerð búsetudeildar.

Áfrýjun og afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Víðilundur - dagþjónusta
Málsnúmer 2013100063Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti að dagþjónustunni í Víðilundi hefðu borist gjafir, vaxpottur og grjónapúðar að upphæð 120 þúsund kr. frá Kvenfélaginu Baugi í Grímsey. Gjafirnar nýtast vel fyrir gesti staðarins.
Félagsmálaráð þakkar Kvenfélaginu Baugi góðar gjafir.

NPA - samningar
Málsnúmer 2008100045Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu drög að NPA samningi.

Afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Öldrunarrými - biðlisti 2014
Málsnúmer 2014010199Lagt fram til kynningar.

ÖA - velferð og tækni, velferðartækni
Málsnúmer 2013010215Lagt fram minnisblað dags. 17.janúar 2014 þar sem lýst er þátttöku ÖA í undirbúningi og umfjöllun um velferðartækni. Velferðarráðuneytið hefur skipað starfshóp til að undirbúa stefnumörkun í velferðartækni í félagsþjónustu og er framkvæmdastjóri ÖA skipaður í hópinn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. \nJafnframt er greint frá að í undirbúningi sé ráðstefna um velferðartækni og nýsköpun, sem haldin verði á Akureyri dagana 5. og 6. júní 2014.\nLagt fram til kynningar.

Langtímaáætlun - búsetudeild
Málsnúmer 2013010300Langtímaáætlun búsetudeildar lögð fram

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.