Félagsmálaráð - 1201
- Kl. 14:00 - 16:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1201
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Valur Sæmundsson
- Valbjörn Helgi Viðarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kolbeinn Aðalsteinssonfundarritari
Fjárhagserindi 2015 - áfrýjanir
Málsnúmer 2015010023Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Fjárhagsaðstoð 2014
Málsnúmer 2014010040Lagt var fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð ársins 2014.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Fjárhagsaðstoð - greining á skjólstæðingahópi 2014
Málsnúmer 2015010171Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti niðurstöður greiningar á samsetningu skjólstæðingahóps fjölskyldudeildar varðandi fjárhagsaðstoð tímabilið 1. janúar - 4. september 2014, dagsett 30. desember 2014.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2015
Málsnúmer 2015010173Lagt var fram bréf dagsett 6. janúar 2015 frá Réttindagæslumanni fatlaðra, Guðrúnu Pálmadóttur og minnisblað dagsett 19. janúar 2015 frá Karólínu Gunnarsdóttur þjónustustjóra á fjölskyldudeild.
Málefni eintaklinga eru vistuð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2014
Málsnúmer 2014110246Tekið var fyrir að nýju erindi dagsett 26. nóvember 2014 frá Erlingi Kristjánssyni forstöðumanni Fjölsmiðjunnar á Akureyri þar sem óskað er eftir endurnýjun á rekstrarstyrk frá Akureyrarbæ. Málið var áður á dagskrá á tveimur fundum í desember sl.
Félagsmálaráð samþykkir að gera nýjan samstarfssamning við Fjölsmiðjuna á Akureyri fyrir árin 2015-2017. Sigríði Huld Jónsdóttur formanni félagsmálaráðs og Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdarstjóra fjölskyldudeildar er falið að ganga til viðræðna við Fjölsmiðjuna.
Velferðarstefna 2014-2018
Málsnúmer 2015010191Rætt um gerð velferðarstefnu.
Félagsmálaráð ræddi um gerð velferðarstefnu og samþykkir að koma saman á aukafundi til að vinna að verkáætlun.
Samþykktir fastanefnda - endurskoðun 2014
Málsnúmer 2013060144Lagt var fram endurskoðað erindisbréf félagsmálaráðs dagsett 19. janúar 2015.
Félagsmálaráð fór yfir samþykktir ráðsins og samþykkti að breyta nafni ráðsins í velferðarráð. Samþykktin er send til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
ÖA - vaktir styttar 2008
Málsnúmer 2014110195Lagt fram bréf dagsett 11. nóvember 2014 frá starfsmönnum Öldrunarheimila Akureyrar, vegna styttingar á vöktum á Hlíð árið 2008.
Málið var áður á dagskrá 7. janúar 2015.
Lagt var fyrir svarbréf Britar J. Bieltvedt fyrrverandi framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar til Landlæknis dagsett 16. mars 2010, fundargerð starfsmannafundar dagsett 9. desember 2008 og bréf til starfsmanna dagsett 22. desember 2009.Félagsmálaráð felur Sigríði Huld Jónsdóttur formanni félagsmálaráðs og Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra að svara bréfritara.