Fræðsluráð - 18
- Kl. 13:30 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 18
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Baldvin Valdemarsson
- Brynhildur Pétursdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Skimun fyrir kvíða og þunglyndi barna
Málsnúmer 2017100346Alþingi Íslands samþykkti vorið 2016 stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Unnið er að innleiðingu hennar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem meðal annars er stefnt að árvissum skimunum fyrir kvíða og þunglyndi meðal barna og unglinga í samvinnu við grunnskóla og skólaþjónustu á Norðurlandi. Fyrsta skimun beinist að grunnskólanemendum í 5. bekk í Akureyrarbæ og í nærsveitum.
Pétur Maack yfirsálfræðingur á HSN og Aðalheiður Jónsdóttir sálfræðingur á HSN komu á fundinn og sögðu frá fyrirkomulagi á skimuninni í skólum Akureyrarbæjar.Fræðsluráð fagnar auknu samstarfi HSN og fræðslusviðs á sviði heilbrigðisþjónustu við börn og þakkar fyrir góða kynningu.
Skólastefna - nýsmíði 2017
Málsnúmer 2017080125Vinna við gerð skólastefnu.
Baldvin Valdemarsson D-lista vék af fundi kl. 14:45.
Skóli án aðgreiningar
Málsnúmer 2017100221Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs fór fyrir yfir helstu niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar á stöðu stefnunnar um skóla án aðgreiningar í íslenskum skólum sem kynnt var á vormánuðum 2017.
Kynning niðurstaðna er samantekt úr skýrslunni Menntun fyrir alla: Úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs
Málsnúmer 2017050044Umræða um þriggja ára framkvæmdaáætlun.