Stjórn Akureyrarstofu - 184
- Kl. 16:15 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 184
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Greta Salome - styrkbeiðni 2015
Málsnúmer 2015030185Umsókn dagsett 9. mars 2015 frá Podium ehf þar sem farið er fram á styrk vegna hljóðupptöku Gretu Salome í Menningarhúsinu Hofi 29. mars 2015.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Ferðamálafélag Hríseyjar - samningur 2013-2015
Málsnúmer 2013090136Umsókn frá Ferðamálafélagi Hríseyjar um 20% stöðugildi starfsmanns.
Afgreiðslu erindisins frestað.
Hríseyjarhátíð - styrkbeiðni 2015
Málsnúmer 2015020176Styrkbeiðni dagsett 23. febrúar 2015 frá Hríseyjarhátíð þar sem farið er fram á 300.000 kr. styrk til hátíðarhalda.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita 300.000 kr. styrk til verkefnisins.
Hollvinafélag Húna II - umsókn um samning við Menningarsjóð 2015
Málsnúmer 2015030079Umsókn dagsett 26. febrúar 2015 frá Hollvinum Húna II um styrk úr Menningarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gera eins árs samstarfssamning við Hollvini Húna II með 300.000 kr. framlagi til verkefnisins.
Byggingalistaverðlaun 2015
Málsnúmer 2015030240Stjórn Akureyrarstofu hefur mótað sér verklagsreglur vegna byggingalistaverðlauna. Samkvæmt þeim skal stjórn Akureyrarstofu tilnefna einn mann í fagráð vegna veitingar byggingalistaverðlauna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi tillögu að verklagsreglum um byggingalistaverðlaun.
Stjórn Akureyrarstofu tilnefnir Árna Ólafsson arkitekt í fagráð vegna byggingalistaverðlauna.Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2015-2018
Málsnúmer 2015030239Kynning á framkvæmd starfsáætlunar.
Lagt fram til kynningar dæmi um skráningu í starfsáætlun stjórnar.Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun 2014-2015
Málsnúmer 2014080028Lögð fram endurskoðuð fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu fram að sumarleyfi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi drög að fundaáætlun fram að sumarleyfi.
Umsóknir í Húsverndarsjóð 2015
Málsnúmer 2015010040Umsagnir skipulagsdeildar og Minjasafnsins á Akureyri um umsóknir í Húsverndarsjóð lagðar fram til kynningar.
Hanna Rósa Sveinsdóttir sérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri kom á fundinn og gerði grein fyrir niðurstöðum umsagnaraðila.Aðalstræti 10 - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030007Umsókn dagsett 27. febrúar 2015 frá Páli Björnssyni þar sem farið er fram á styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Spítalavegur 15 - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030008Umsókn dagsett 27. febrúar 2015 frá Þórdísi Kötlu Einarsdóttur þar sem farið er fram á styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Aðalstræti 17 - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030009Umsókn dagsett 26. febrúar 2015 frá Hallgrími Ingólfssyni og Sveini Björnssyni þar sem farið er fram á styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Hafnarstræti 18 - Tulíníusarhús - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030010Umsókn dagsett 26. febrúar 2015 frá Finni Rey Fjölnissyni þar sem farið er fram á styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita 250.000 kr. styrk til verkefnisins.
Aðalstræti 50 - neysluvatnsbrunnur - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030011Umsókn dagsett 24. febrúar 2015 frá Önnu Guðnýju Sigurgeirsdóttur þar sem sótt er um styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita 250.000 kr. styrk til verkefnisins.
Hafnarstræti 90 - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030012Umsókn dagsett 13. febrúar 2015 frá Hlyni Hallssyni þar sem sótt er um styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.
Strandgata 27 - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2015
Málsnúmer 2015030013Umsókn dagsett 11. febrúar 2015 frá Elísabetu Gunnarsdóttur þar sem sótt er um styrk úr Húsverndarsjóði.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.