Íþróttaráð - 198
- Kl. 15:00 - 16:41
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 198
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Íþróttahús Naustaskóla
Málsnúmer 2016100060Tekin fyrir bókun aðalstjórnar KA frá aðalstjórnarfundi 5. október 2016:
Aðalstjórn KA lýsir áhyggjum sínum yfir minnkandi aðstöðu fyrir starfsemi deilda sinna og starfsemi áhugahópa í almenningsíþróttum með því að loka íþróttahúsinu í Laugagötu. Aðalstjórn KA skorar á Íþróttaráð að opna íþróttahús Naustaskóla fyrir íþróttafélög og almenning.Íþróttaráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við því að svo stöddu.
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Lögð fram drög að lykiltölum í starfsáætlun ráðsins.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Lagt fram rekstraryfirlit íþróttaráðs fyrir janúar til september 2016.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Guðrún Þórsdóttir V-lista vék af fundi kl. 15:55. <br />
Í ágúst 2016 var kallað eftir upplýsingum frá íþróttamannvirkjum og aðildarfélögum ÍBA varðandi framkvæmdir, viðhald, búnað eða breytingar þar sem óskað yrði/var eftir aðkomu íþróttaráðs varðandi styrkveitingu. Hluti af þeim tillögum sem sendar voru íþróttaráði fóru inn í fjárhagsáætlun næsta árs.
Framkvæmdastjóri lagði fram tillögu að verkefnum sem íþróttaráð getur styrkt í ár.Íþróttaráð samþykkir framlagðar tilögur og felur framkvæmdastjóra að vinna þær áfram.
Íþróttaráð 2016 - önnur mál
Málsnúmer 2016020029Umræður um ýmis mál er varða íþróttaráð.