Félagsmálaráð - 1147
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1147
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonvaraformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Bryndís Dagbjartsdóttirfundarritari
Fjárhagsaðstoð 2012
Málsnúmer 2012010021Lagt fram yfirlit yfir veitta aðstoð eftir fyrstu sjö mánuði ársins.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Vinabæjamót félagsmálafólks - 2012
Málsnúmer 2012080046Farið yfir dagskrá vinabæjamóts sem til stendur að halda á Akureyri 29.- 31. ágúst nk. og önnur atriði sem tengjast afmælisárinu.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og felur framkvæmdastjórum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 2009110111Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 sem voru samþykkt á Alþingi 11. júní 2012 (ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk).

Félagsmálaráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju sinni með breytingarnar á lögunum.

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014, 440. mál
Málsnúmer 2012020024Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttur framkvæmdastjóri búsetudeildar lögðu fram til kynningar tillögu velferðarráðherra um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014 sem Alþingi samþykkti þann 11. júní sl.

Umsögn félagsmálaráðs um ráðningu í stöðu forstöðumanns búsetuþjónustu til eins árs.
Málsnúmer 2012080032Umsögn félagsmálaráðs um ráðningu í stöðu forstöðumanns búsetuþjónustu til eins árs. Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram gögn í málinu á fundinum.

Félagsmálaráð tekur undir mat framkvæmdastjóra og veitir Birgit Eivor Schov jákvæða umsögn.