Bæjarráð - 3571
- Kl. 08:15 - 11:50
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3571
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Preben Jón Péturssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 121 - stjórnsýslusvið og fjársýslusvið
Málsnúmer 2017090169Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir kostnaðarstöð 121 og starfsáætlanir fyrir fjársýslusvið og stjórnsýslusvið.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021
Málsnúmer 2017040095Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur - úthýsing
Málsnúmer 2014050114Tekið fyrir að nýju. Meirihluti bæjarráðs frestaði afgreiðslu á síðasta fundi sínum:
Lögð fram drög að samþykktum og stofnskrá fyrir félagið Hlíðarhrygg ehf sem stofnað yrði til að undirbúa og byggja upp fjölbreytta heilsárs starfsemi í Hlíðarfjalli. Einnig lögð fram samstarfstillaga fyrir Hlíðarfjall - Alla leið - um vinnslu hagkvæmniskönnunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttadeildar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Dan Jens Brynjarsson sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagðar samþykktir og stofnskrá fyrir félagið Hlíðarhrygg ehf.
Bæjarráð samþykkir einnig framlagða samstarfstillögu fyrir Hlíðarfjall - Alla leið.Útboð - yfirlit
Málsnúmer 2017100204Lagt fram til kynningar yfirlit yfir fyrirhuguð útboð á árinu 2018.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Karl Guðmundsson verkefnastjóri og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Dómur Hæstaréttar í máli nr. 634/2016
Málsnúmer 2015030064Lagður fram til kynningar dómur Hæstaréttar nr. 634/2016 SS Byggir ehf og Hálönd ehf gegn Akureyrarkaupstað.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fylgiskjöl
Íbúakort
Málsnúmer 2017090124Lagt fram til kynningar álit bæjarlögmanns vegna íbúakorta.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fylgiskjöl
Félagi eldri borgara á Akureyri - erindi varðandi hugmyndir Búfesta hsf
Málsnúmer 2017090332Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. september 2017 frá Hauki Halldórssyni f.h. Félags eldri borgara á Akureyri þar sem félagið lýsir yfir stuðningi við hugmyndir Búfesta hsf um íbúðabyggingar á Akureyri sem þau telja að muni verða til hagsbóta fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Félagið hvetur Akureyrarbæ til að vinna markvisst að því að þessar hugmyndir verði að veruleika.
Fylgiskjöl
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð
Málsnúmer 2016100117Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 12. október 2017.
Bæjarráð vísar 1. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 2. lið til bæjarstjóra, 3., 4. og 5. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Eyþing - fundargerð
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 299. fundar stjórnar Eyþings dagsett 27. september 2017. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir
Fylgiskjöl
Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerðir
Málsnúmer 2017010129Lagðar fram fundargerðir 70. og 71. fundar hverfisnefndar Oddeyrar dagsettar 6. febrúar og 3. október 2017.
Fundargerðirnar má finna á vefslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/oddeyri/fundargerdirBæjarráð vísar 1. lið í fundargerð 70. fundar til skipulagssviðs og 2. og 3. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Bæjarráð vísar fundargerð 71. fundar til umhverfis- og mannvirkjasviðs.Fylgiskjöl
Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerð
Málsnúmer 2017010127Lögð fram fundargerð 102. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsett 19. september 2017.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdirBæjarráð vísar 1., 2., 4., 5. og 6. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs 3. og 7. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Fylgiskjöl
Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð
Málsnúmer 2010020035Lögð fram 112. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 11. október 2017. Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdirBæjarráð vísar 2. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 1., 3., 4., 5. og 6. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Fylgiskjöl