Samfélags- og mannréttindaráð - 115
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 115
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Heimir Haraldsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Regína Helgadóttir
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- María Hólmfríður Marinósdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Kynjuð fjárhagsáætlanagerð
Málsnúmer 2011030090Samkvæmt Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar skulu allar nefndir á vegum bæjarins vinna tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhagsáætlanagerð. Bergljót Jónasdóttir forstöðumaður tómstundamála sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð felur framkvæmdastjóra og forstöðumanni tómstundamála að gera tillögu að tilraunaverkefni.

Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - jafnréttisáætlanir stofnana
Málsnúmer 2011100052Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.\nJafnréttisáætlun Naustaskóla lögð fram til kynningar.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar áætluninni og hvetur þær stofnanir sem ekki hafa lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana að gera það sem fyrst.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2012
Málsnúmer 2012090256Dagana 25. nóvember til 10. desember nk. mun samfélags- og mannréttindaráð ásamt fleirum taka þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift átaksins er "heimilisfriður - heimsfriður". Undirbúningshópur vegna átaksins hefur sent hvatningu um þátttöku til grunnskólanna.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur grunnskólana til að leggja sérstaka áherslu á umræðu um "heimilisfrið - heimsfrið" á meðan á átakinu stendur.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista vék af fundi kl. 17:55.
Ungt fólk - æskulýðsrannsóknir 2011-2016
Málsnúmer 2011010132Lögð fram til kynningar tillaga frá Rannsóknum og greiningu ehf um samstarf um úrvinnslu rannsókna á högum og líðan ungs fólks á Akureyri.

Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar
Málsnúmer 2012090258Ræddar hugmyndir um veitingu viðurkenninga til þeirra sem skara framúr í æskulýðs- og tómstundastarfi.

Leikklúbburinn Saga - styrkbeiðni 2012
Málsnúmer 2012100088Erindi dags. 16. september 2012 frá Ásgerði Ólöfu Ásgeirsdóttur fyrir hönd Leikklúbbsins Sögu þar sem óskað er eftir styrk fyrir húsaleigu í Rósenborg vegna Norræns samstarfsverkefnis sem unnið var sl. sumar.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita styrk vegna húsaleigu í Rósenborg.

Q - félag hinsegin stúdenta - styrkbeiðni vegna bæklingagerðar
Málsnúmer 2012090001Erindi dags. 29. ágúst 2012 frá Gunnari Erni Kárasyni f.h. Q - félags hinsegin stúdenta þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 5.000 - 25.000 vegna gerðar bæklings sem myndi útskýra hvað það er að vera ,,hinsegin" í nútíma samfélagi.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 25.000 og vonar að verkefnið verði að veruleika.