Bæjarráð - 3587
- Kl. 08:15 - 10:35
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3587
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Preben Jón Péturssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonsviðsstjóri fjársýslusviðs
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Álagning gjalda - fasteignagjöld 2018 - endurskoðun á reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega
Málsnúmer 2017110123Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 8. febrúar sl. en þá frestaði bæjarráð afgreiðslu.
Lögð var fram tillaga að endurskoðuðum reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2018.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum að reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2018 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Félagsþjónusta - stuðningsfjölskyldur
Málsnúmer 20151100676. liður í fundargerð velferðarráðs 7. febrúar 2018.
Lögð fram tillaga að breytingum á greiðslum til stuðningsfjölskyldna sbr. minnisblað Karólínu Gunnarsdóttur forstöðumanns dagsett 5. febrúar 2018.
Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingum á greiðslum til stuðningsfjölskyldna og vísar málinu til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillögu velferðarráðs.
Bæjarráð samþykkir einnig að greiðslur til stuðningsfjölskyldna hækki árlega frá og með 1. janúar miðað við launavísitölu janúarmánaðar.
Grímseyjarskóli - leikskóladeild
Málsnúmer 20180200097. liður í fundargerð fræðsluráðs dagsett 6. febrúar 2018:
Erindi dagsett 23. janúar 2018 frá skólastjóra Grímseyjarskóla þar sem óskað er eftir að opnuð verði á ný leikskóladeild við skólann.
Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi kynnti minnisblað varðandi forsendur og kostnað á árinu 2018 við opnun leikskóladeildarinnar. Áætlaður kostnaður er kr. 1.430 þús. miðað við 4 tíma vistunartíma í 5 daga vikunnar og starfrækslu í 8 mánuði á árinu 2018.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og vísar ósk um viðbótarfjárþörf til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að opnuð verði á ný leikskóladeild við skólann og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka að upphæð kr. 1.430 þús. vegna þess.
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Akureyri - styrkbeiðni 2018
Málsnúmer 2018020134Erindi dagsett 5. febrúar 2018 frá Baldvini Valdemarssyni verkefnastjóra fyrir hönd undirbúningshóps um Atvinnu- og nýsköpunarhelgina á Akureyri. Í erindinu er óskað eftir 500.000 kr. styrk vegna Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar á Akureyri sem haldin verður í sjöunda sinn 3.- 4. mars nk.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 500.000 og skal styrkurinn tekinn af styrkveitingum bæjarráðs.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 302. fundar stjórnar Eyþings dagsett 26. janúar 2018. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir
Fylgiskjöl
Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð
Málsnúmer 2010020035Lögð fram 113. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 11. febrúar 2018.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdirBæjarráð vísar fundargerðinni til skipulagssviðs.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um útlendinga (réttur barna til dvalarleyfis), 34. mál
Málsnúmer 2018020169Lagt fram til kynningar erindi dagsett 12. febrúar 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um útlendinga (réttur barna til dvalarleyfis), 34. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0034.htmlFylgiskjöl
Frumvarp til laga um útlendinga (fylgdarlaus börn), 42. mál
Málsnúmer 2018020185Lagt fram til kynningar erindi dagsett 12. febrúar 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um frumvarp til laga um útlendinga (fylgdarlaus börn), 42. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0042.htmlFylgiskjöl
Frumvarp til laga um íslenskan ríkisborgararétt og barnalög (ríkisfangsleysi), 133. mál
Málsnúmer 2018020186Lagt fram til kynningar erindi dagsett 13. febrúar 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um íslenskan ríkisborgararétt og barnalög (ríkisfangsleysi), 133. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0205.htmlFylgiskjöl
Frumvarp til laga um ættleiðingar (umsagnir nánustu fjölskyldu), 128. mál
Málsnúmer 2018020187Lagt fram til kynningar erindi dagsett 13. febrúar 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um ættleiðingar (umsagnir nánustu fjölskyldu), 128. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0198.htmlFylgiskjöl