Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 691
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 691
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Njarðarnes 12 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2018030307Erindi dagsett 4. september 2018 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 12 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Tjarnartún 31 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2011110026Erindi dagsett 20. júní 2018 þar sem Ragnheiður Sverrisdóttir fyrir hönd Heimis Finnssonar og Kristveigar Atladóttur sækir um breytt innra skipulag og breytingar á útliti húss nr. 31 við Tjarnartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Eyjólf Valgarðsson. Innkomnar nýjar teikningar 5. september 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Daggarlundur 11 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2014090246Erindi dagsett 5. september 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Friðgeirs Valdimarssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 11 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Víðimýri 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum
Málsnúmer 2018040124Erindi dagsett 9. apríl 2018 þar sem Jónas Vigfússon fyrir hönd Hrafnkels Reynissonar og Lilju K. Bjarnadóttur sækir um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum á húsi nr. 3 við Víðimýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas Vigfússon. Innkomnar nýjar teikningar 3. september 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Krókeyrarnöf 12 - umsókn um breytingar
Málsnúmer BN070474Erindi dagsett 31. ágúst 2018 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Fjalars Úlfarssonar, Hrefnu Dagbjartsdóttur og Dagbjarts Halldórssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 12 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi er teikning eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.