Félagsmálaráð - 1200
- Kl. 14:00 - 17:10
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1200
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Jóhann Gunnar Sigmarssonvaraformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Valur Sæmundsson
- Valbjörn Helgi Viðarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kolbeinn Aðalsteinssonfundarritari
Fjárhagserindi 2015 - áfrýjanir
Málsnúmer 2015010023Ester Lára Magnúsdóttir verkefnisstjóri kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2014
Málsnúmer 2014010039Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti stöðuna á biðlista dagsettum 2. janúar 2015 eftir leiguhúsnæði Akureyrarbæjar um áramót.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Húsaleigubætur - yfirlit 2014
Málsnúmer 2014110105Lagt var fram til kynningar yfirlit dagsett 2. janúar 2015 frá Jóni Heiðari Daðasyni húsnæðisfulltrúa um almennar og sérstakar húsaleigubætur - stöðu um áramót.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Forgangur í leiguhúsnæði 2015 - áfrýjanir
Málsnúmer 2015010024Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun vegna forgangs á biðlista eftir leiguíbúð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Öldrunarheimili Akureyrar - vaktir styttar 2008
Málsnúmer 2014110195Lagt var fram bréf dagsett 11. nóvember 2014 frá starfsmönnum Öldrunarheimila Akureyrar vegna styttingar á vöktum á Hlíð árið 2008, sem hafa ekki verið lengdar aftur.
Félagsmálaráð óskar eftir frekari gögnum og frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Ábendingar starfsmanna öldrunarheimilanna til bæjarstjóra
Málsnúmer 2014120042Lögð var fyrir samantekt og minnisblað dagsett 26. nóvember 2014 vegna ábendingar starfsmanna Öldrunarheimila Akureyrar.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Öldrunarheimili Akureyrar og búsetudeild - samstarf við háskólastigið
Málsnúmer 2013120101Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór Sigurður Guðmundsson og framkvæmdastjóri búsetudeildar, Soffía Lárusdóttir, reifuðu nokkur atriði frá viðræðufundi með Háskólanum á Akureyri. Fjallað var um áform um samstarfssamning um klínískt nám, samskipti, endurmenntun og rannsóknir.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 2009110111Oktavía Jóhannesdóttir D-lista fór af fundi kl. 15:50. <br />
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu skýrslu með úttekt á þjónustu við fatlað fólk á þjónustusvæði Eyjafjarðar. Skýrslan er hluti af sameiginlegu mati ríkis og sveitarfélaga á faglegum árangri tilfærslunnar.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna.
Búsetudeild - ráðstefna the Gentle Teaching International conference
Málsnúmer 2014120158Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram minnisblað dagsett 2. janúar 2015 og óskaði eftir heimild félagsmálaráðs til að ganga til viðræðna við stjórn Alþjóðasamtaka Gentle Teaching um að halda árið 2016 alþjóðlega ráðstefnu samtakanna á Akureyri.
Félagsmálaráð þakkar kynninguna. Félagsmálaráð heimilar búsetudeild að ganga til viðræðna við stjórn Alþjóðasamtaka Gentle Teaching um að halda árið 2016 alþjóðlega ráðstefnu samtakanna á Akureyri.