Bæjarráð - 3579
- Kl. 08:15 - 12:08
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3579
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Preben Jón Péturssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021
Málsnúmer 2017040095Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2018-2021 til bæjarstjórnar til síðari umræðu og afgreiðslu og lítur svo á að þar með hafi verið afgreidd erindi og tillögur um fjárveitingar sem borist hafa bæjarráði og vísað hefur verið til gerðar fjárhagsáætlunar.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 08:50.
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista vék af fundi kl. 10:16.Snorri Óskarsson - bótakrafa
Málsnúmer 2015050121Eiríkur Björn Björgvinsson mætti aftur til fundar kl. 10:22.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður fór yfir málið.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Gunnar Gíslason D-lista bar upp vanhæfi sitt og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.Bæjarráð samþykkir að áfrýja málinu.
Gatnagerðargjöld - afslættir
Málsnúmer 2017120021Rætt um reglur um afslátt vegna jarðvegsdýptar.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð vísar endurskoðun á afsætti vegna jarðvegsdýptar til skipulagsráðs.
Ný persónuverndarlög
Málsnúmer 2017080040Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður kynnti málið.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Menntaskólinn á Tröllaskaga
Málsnúmer 2007100109Lagt fram erindi dagsett 29. nóvember 2017 frá deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála Fjallabyggðar þar sem fram koma upplýsingar um kostnaðaruppgjör vegna viðbyggingar Menntaskólans á Tröllaskaga.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að greiða hlutdeild Akureyrarbæjar sem fram kemur í kostnaðaruppgjöri vegna viðbyggingar Menntaskólans á Tröllaskaga.
Félag eldri borgara á Akureyri - samkomulag
Málsnúmer 20080102064. liður í fundargerð frístundaráðs dagsett 23. nóvember 2017:
Drög að nýjum samningi við Félag eldri borgara á Akureyri lagður fram.
Frístundaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Alfa Aradóttir deildarstjóri forvarna- og frístundarmála sat fundinn undir þessum lið.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir samninginn.
Hljóðvistarstyrkir - reglur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 20171102683. liður í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráði dagsett 1. desember 2017:
Teknar fyrir að nýju reglur vegna styrkveitinga í glerskipti vegna hljóðvistar við götur.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir endurskoðaðar reglur með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði. Ráðið óskar jafnframt eftir því að fjármagn verði sett í verkefnið á árinu 2018.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fyrir liggur tillaga í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 að veita 2 milljónum í verkefnið.
Hollvinafélag Húna II - beiðni um samstarfssamning
Málsnúmer 2017110436Lagt fram erindi frá fulltrúum Hollvinafélagsins Húna II þar sem óskað er eftir að gerður verði samstarfssamningur um verkefni bátsins fyrir Akureyrarbæ.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ræða við fulltrúa Hollvinafélagsins Húna II um gerð samstarfssamnings.
Hjallalundur 20-205 - kaup á íbúð
Málsnúmer 2017120038Lagt fram kauptilboð í Hjallalund 20, íbúð 205.
Bæjarráð samþykkir kauptilboðið.
Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2017/2018
Málsnúmer 2017090075Lagt fram til kynningar bréf dagsett 21. nóvember 2017 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018, 158 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 103 þorskígildistonn vegna Grímseyjar. Í bréfinu kemur fram að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 20. desember 2017.
Bæjarráð leggur áherslu á að sértækum aðgerðum verði haldið áfram varðandi úthlutun byggðakvóta til Grímseyjar á grundvelli verkefnisins Brothættar byggðir.
Skátafélagið Klakkur - ábending um akstur utan vega við Fálkafell og beiðni um takmörkun á umferð
Málsnúmer 2017110366Erindi dagsett 27. nóvember 2017 frá Skátafélaginu Klakki þar sem beðið er um að bæjarstjórn Akureyrar beiti sér fyrir því að umferð um Glerárdalsöxl og Efstulág verði takmörkuð eða bönnuð. Erindinu fylgja ljósmyndir af hjólförum á svæðinu.
Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010137Lögð fram til kynningar fundargerð 854. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 24. nóvember 2017. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð
Málsnúmer 2017100376Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 30. nóvember 2017.
Bæjarráð vísar 1. lið til sviðsstjóra fjársýslusviðs, 2. og 7. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 3. lið til bæjarstjóra, 4. lið til fjölskyldusviðs, 6. lið til fræðsluráðs og 5. liður er lagður fram til kynningar í bæjarráði.