Stjórn Akureyrarstofu - 106
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 106
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Leikfélag Akureyrar - stuðningur við rekstur 2011-2012
Málsnúmer 2011090120Lagður fram til kynningar samningur við Leikfélag Akureyrar sem undirritaður var þann 26. september 2011. Samkvæmt honum munu samningsaðilar í sameiningu kanna rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar og leggja fram tillögu að framtíðarskipulagi atvinnuleikhúss á Akureyri. Skipaðir verða tveir fulltrúar úr stjórn Akureyrarstofu og tveir fulltrúar LA í starfshóp sem munu í sameiningu stýra og gera áætlun fyrir þá vinnu sem framundan er.

Stjórn Akureyrarstofu skipar Höllu Björk Reynisdóttur L-lista og Sóleyju Björk Stefánsdóttur V-lista í starfshópinn fyrir sína hönd.

Leikfélag Akureyrar - tilnefning í uppstillingarnefnd
Málsnúmer 2011090120Erindi dags. 5. október 2011 frá Sigrúnu Björk Jakobsdóttur fh. stjórnar Leikfélags Akureyrar þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær skipi fulltrúa í uppstillingarnefnd félagsins í samræmi við lög þess.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa framkvæmdastjóra Akureyrarstofu fyrir sína hönd í uppstillingarnefndina.

Menningarfélagið Hof ses - ósk um endurnýjun samstarfssamnings félagsins og Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2011030188Farið yfir drög að samkomulagi við Menningarfélagið Hof ses.

Skipulagsbreytingar í Listagili - ráðning forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar
Málsnúmer 2011040137Farið yfir niðurstöður á mati á umsóknum og viðtölum við umsækjendur. Búið er að ræða einu sinni við þá umsækjendur sem til greina þóttu koma og þeir tveir sem metnir voru hæfastir hafa komið í annað viðtal. Í því tóku þátt auk ráðgjafa frá Capacent framkvæmdastjóri Akureyrarstofu og tveir fulltrúar úr stjórn Akureyrarstofu.\nSóley Björk Stefánsdóttir V-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

AIM Festival - styrkbeiðni 2011
Málsnúmer 2011090108Erindi dags. 4. september 2011 frá Jóni Hlöðveri Áskelssyni f.h. AIM festival þar sem óskað er eftir stuðningi og aðstoð við frágang á málum hátíðarinnar hjá BYR.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ræða við hagsmunaaðila í þessu máli áður en það verður tekið fyrir að nýju.

Eyþing - aðalfundur 2011
Málsnúmer 2011090004Rætt um atvinnumál almennt á svæði Eyþings og farið yfir þau viðfangsefni aðalfundarins sem snerta málaflokka stjórnar Akureyrarstofu.

Sveitarstjórnarlög samþykkt á Alþingi 17. september 2011
Málsnúmer 2011040087Rætt um ný sveitarstjórnarlög og áhrif þeirra á stjórnsýslu sveitarfélaganna.\nLagt fram til kynningar minnisblað dags. 30. september 2011 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um málið.

Leiklistarsamband Íslands - ályktun um málefni Leikfélags Akureyrar
Málsnúmer 2011100014Lögð fram til kynningar ályktun Leiklistarsambands Íslands dags. 26. september 2011 um málefni Leikfélags Akureyrar þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að standa vörð um starfsemi félagsins.

Háskólinn á Akureyri - prófessorsstaða í norðurslóðafræðum
Málsnúmer 2011100020Þann 29. september 2011 undirrituðu Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra Noregs og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Íslands samkomulag um að Norðmenn kosti stöðu prófessors í norðurslóðafræðum við Háskólann Akureyri, svonefnda Nansenstöðu. Auk þess nær samkomulagið til margskonar samvinnu HA við norska Háskóla.

Stjórn Akureyrarstofu fagnar sérstaklega þessum stuðningi Norðmanna sem styrkir enn frekar stöðu Norðurlands og Akureyrar sem miðstöð norðurslóðamálefna á Íslandi.