Bæjarráð - 3516
- Kl. 08:30 - 11:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3516
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Katrín Björg Ríkarðsdóttiraðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Menningarfélag Akureyrar - MAK
Málsnúmer 2016030110Farið yfir rekstur Menningarfélags Akureyrar.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar lagði fram gögn í samræmi við bókun bæjarráðs 14. júlí sl.
Sigurður Kristinsson formaður stjórnar Menningarfélagsins og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar sátu einnig fundinn undir þessum lið.Bæjarráð þakkar Þuríði Helgu og Sigurði fyrir kynninguna og felur fjármálastjóra og formanni bæjarráðs að vinna málið í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2016
Málsnúmer 2016040185Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til júní 2016.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.Knattspyrnufélag Akureyrar - rekstrarsamningur
Málsnúmer 2015110251Lagt fram erindi dagsett 20. júlí 2016 frá Sævari Péturssyni f.h. Knattspyrnufélags Akureyrar þar sem óskað er eftir því að bæjarráð falli frá kröfu í rekstrarsamningi um fullnaðaráritun ársreikninga félagsins eða hækki framlag sitt til félagsins.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.Bæjarráð vekur athygli á því að Reglur um styrkveitingar Akureyrarkaupstaðar eru skýrar hvað varðar kröfur um endurskoðun ársreikninga. Bæjarráð telur mikilvægt að halda sig við þær reglur sem eru í gildi og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
http://www.akureyri.is/static/files/Stjornsysla/Reglurstyrkv.pdfAðgerðahópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015120146Farið yfir verkefnalista sem aðgerðahópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar tók saman.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.Öldrunarheimili Akureyrar
Málsnúmer 2016030150Lagt fram minnisblað dagsett 13. júlí 2016 um stöðu og ábyrgð sveitarfélagsins gagnvart rekstri öldrunarheimilanna.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2016
Málsnúmer 2016010056Lögð fram til kynningar fundargerð 841. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 24. júní 2016. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga L-lista um áframhaldandi skipan Höllu Bjarkar Reynisdóttur sem formanns framkvæmdaráðs og stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.