Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 903
- Kl. 12:15 - 13:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 903
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Eyrún Halla Eyjólfsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 2B - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023011225Erindi dagsett 23. janúar 2023 þar sem Jónas Vigfússon fyrir hönd Jóns Ómars Hraundals Halldórssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bílgeymslu að Hafnarstræti 2B. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas Vigfússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Gleráreyrar 1 - rými 39, umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023020415Erindi dagsett 9. febrúar 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. fyrirhugað er að breyta rými nr. 39. Meðfylgjandi er teikning eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Spítalavegur 13 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023011527Erindi dagsett 27. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Snorra Björnssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu norðan við hús nr. 13 við Spítalaveg. Innkomnar nýjar teikningar 14. febrúar 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hulduholt 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022090110Erindi dagsett 2. september 2022 þar sem Haraldur Sigmar Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu.
Tryggvabraut 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023011423Erindi dagsett 26. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut. Innkomnar nýjar teikningar 13. febrúar 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Helgamagrastræti 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023020037Erindi dagsett 1. febrúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Rebekku Kristínar Garðarsdóttur sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bílskúr ásamt breytingum á innra skipulagi núverandi húss nr. 9 við Helgamagrastræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.