Velferðarráð - 1335
- Kl. 14:00 - 15:35
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1335
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2021 - áfrýjanir
Málsnúmer 2021010234Anna Sigríður Jónsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2020050662Lagt fram minnisblað dagsett 15. mars 2021 um stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra, Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fóru yfir vinnuna varðandi stjórnkerfisbreytingar sem áttu sér stað um sl. áramót þar sem sameinuð voru búsetusvið og fjölskyldusvið í nýtt svið, velferðarsvið.
Stuðningsfjölskyldur - greiðslur til stuðningsfjölskyldna
Málsnúmer 2012030081Lagt fram minnisblað dagsett 15. mars 2021 frá Karólínu Gunnarsdóttur þjónustustjóra og Fanneyju Jónsdóttur ráðgjafa um þörf fyrir breytingar á greiðslum til stuðningsfjölskyldna.
Velferðarráð leggur til að greiðslur til stuðningsfjölskyldna verði hlutfall af meðlagi.
Fyrir 1. flokk er greitt 85% af einu meðlagi, 2. flokk 75% og fyrir 3. flokk 50%.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk 2021
Málsnúmer 2021023175Lagt fram erindi dagsett 10. febrúar 2021 frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2021 að upphæð kr. 450.000.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.