Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 944
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 944
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Mýrarvegur - Kaupangur - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2023050248Erindi dagsett 6. desember 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Akureyrarapóteks ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í Kaupangi, matshluta 01. Innkomin gögn eftir Ragnar Freyr Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Fjölnisgata 6a - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer BN050768Erindi dagsett 5. desember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Fjölnis ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á atvinnuhúsnæði nr. 6a við Fjölnisgötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Lækjargata 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023120307Erindi dagsett 7. desember 2023 þar sem Anna Kristín Karlsdóttir fyrir hönd Grétars Jónssonar sækir um breytta notkun íbúðar 201 í húsi nr. 6 við Lækjargötu. Innkomin gögn eftir Önnu Kristínu Karlsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Týsnes 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023050365Erindi dagsett 1. desember 2023 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir geymsluhúsnæði á lóð nr. 22 við Týsnes. Innkomin gögn eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.