Íþróttaráð - 108
- Kl. 14:00 - 16:00
- Félagsheimili Þórs, Hamri við Skarðshlíð
- Fundur nr. 108
Nefndarmenn
- Nói Björnssonformaður
- Þorvaldur Sigurðsson
- Árni Óðinsson
- Jóhann Gunnar Sigmarssonáheyrnarfulltrúi
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Dýrleif Skjóldaláheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Íþróttaráð - heimsóknir í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2011040054Farin var skoðunarferð um íþróttamannvirki á félagssvæði Þórs.
<DIV><DIV>Íþróttaráð þakkar forráðamönnum Þórs fyrir leiðsögn um svæðið.</DIV></DIV>
Akureyri Handboltafélag - styrkbeiðni 2012
Málsnúmer 2012030131Tekið fyrir að nýju erindi dags. 11. mars 2012 frá Akureyri Handboltafélagi þar sem óskað er eftir styrk frá íþróttaráði. Málið var áður á dagskrá íþróttaráðs 22. mars sl.
<DIV>Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.</DIV>
Munntóbaksnotkun í íþróttamannvirkjum
Málsnúmer 2012040025Rætt um notkun munntóbaks í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar.
<DIV>Íþróttaráð vill minna íþróttafélög á lög Íþróttabandalags Akureyrar þar sem kveðið er á um bann við neyslu tóbaks og vímuefna í tengslum við æfingar og keppni. Einnig er minnt á reglugerð nr. 326/2007 þar sem öll tóbaksneysla er bönnuð í húsakynnum sem ætluð eru til fræðslu-, félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og unglinga. Jafnframt hvetur íþróttaráð Íþróttabandalag Akureyrar og íþróttafélög á Akureyri til að banna alla notkun tóbaks í íþróttastarfi félaganna og í og við íþróttamannvirki.</DIV>