Umhverfis- og mannvirkjaráð - 104
- Kl. 08:15 - 11:06
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 104
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonvaraformaður
- Andri Teitsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun UMSA 2022
Málsnúmer 2021081199Húsaleiguáætlun fyrir árið 2022 lögð fram til samþykktar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða húsaleiguáætlun.
Hafnarstræti 16
Málsnúmer 2021081099Tekin fyrir beiðni frá velferðarsviði varðandi tilfærslu á framkvæmdum á framkvæmdaáætlun. Óskað er eftir því að framkvæmdir við Hafnarstræti 16 fari fram fyrir framkvæmdir við Nonnahaga í framkvæmdaröð vegna velferðarmála.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytta forgangsröðun á framkvæmdaáætlun þar sem framkvæmdir við Hafnarstræti 16 eru færðar fremst og vísar því til bæjarráðs til afgreiðslu.
Holtahverfi - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2021023068Lagt fram minnisblað dagsett 26. ágúst 2021 varðandi framkvæmdir og stöðuna á gatnagerð við Holtahverfi norður.
Slökkvilið - Hrísey
Málsnúmer 2021081117Lagt fram minnisblað dagsett 22. júlí 2021 varðandi slökkvibíl í Hrísey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir lausn samkvæmt framlögðu minnisblaði enda rúmist hún innan reksturs slökkviliðsins.
Fylgiskjöl
Sjúkraflutningar - COVID
Málsnúmer 2019020255Lagt fram minnisblað dagsett 22. júlí 2021 varðandi breytingar á samningum um sjúkraflutninga vegna COVID.
Ráðhús Akureyrar
Málsnúmer 2021011696Lögð fram til kynningar niðurstaða dómnefndar og tillögur í hönnunarsamkeppni vegna viðbyggingar og endurbóta á ráðhúsi Akureyrarbæjar.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundir í grunnskólum
Málsnúmer 2020061178Lagt fram yfirlit um tillögur sem fram komu á stórþingi ungmenna sem haldið var 6. september 2019 og í viðtalstímum bæjarfulltrúa í grunnskólum bæjarins haustið 2019. Á fundi bæjarráðs þann 26. nóvember sl. var liðunum Umhverfis- og mannvirkjasvið 1-6 vísað til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir hugmyndir og tillögur sem komu fram og vísar þeim til frekari vinnslu hjá starfsfólki sviðsins, mörgu af því sem óskað var eftir hefur nú þegar verið brugðist við og listinn hafður til hliðsjónar við framkvæmdir.