Kjarasamninganefnd - 3
- Kl. 09:00 - 10:21
- Fjarfundur
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Guðrún Karitas Garðarsdóttirvaraformaður
- Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Reglur um starfskjör - endurskoðun á reglum
Málsnúmer 2020100647Umfjöllun um Reglur um starfskjör æðstu stjórnenda Akureyrarbæjar dagsettar 11. október 2017.
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri sat fund nefndarinnar undir þessum dagskrárlið.Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu að breytingum á Reglum um starfskjör æðstu stjórnenda Akureyrarbæjar. Tillagan felur í sér að frá 1. júlí 2020 verður hætt að greiða framlag í námsleyfasjóð embættismanna. Frá sama tíma mun Akureyrarbær hefja greiðslur gjalda til stéttarfélaga í samræmi við ákvæði kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við þau stéttarfélög sem um ræðir. Breytingar þessar hafa ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir Akureyrarbæ.
Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2020050662Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 26. nóvember 2020 að sameina fjölskyldusvið og búsetusvið í eitt velferðarsvið og gildir nýtt skipurit frá 1. janúar 2021. Bæjarráð vísaði jafnframt á fundi sínum afgreiðslu vegna starfslýsinga fyrir starf forstöðumanns skrifstofu og leiðandi forstöðumanna til umfjöllunar í kjarasamninganefnd.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjaráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns skrifstofu á velferðarsviði. Niðurstaða kjarasamninganefndar er að samkvæmt gildandi reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hafi breyting á starfslýsingum þriggja forstöðumanna í þá veru að störfin verði leiðandi forstöðumenn ekki í för með sér breytingar á greiðslu stjórnendaálags vegna umræddra starfa.
Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2020-2021, bókun 5
Málsnúmer 2020110842Kynnt erindi frá Karli Frímannssyni fræðslustjóra dags. 26. nóvember 2020 vegna bókunar 5 í nýgerðum kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Afgreiðslu frestað.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga - starfsmat
Málsnúmer 2020110844Umfjöllun um niðurstöðu starfsmats fyrir störf hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.