Stjórn Akureyrarstofu - 283
- Kl. 14:00 - 17:00
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 283
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri skipulagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Akureyrarstofa, starfslýsingar
Málsnúmer 2019010210Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar mætti á fundinn og fór yfir helstu verkefni þessa nýja starfs.
Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun 2019
Málsnúmer 2018120145Lögð fram fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir haustið 2019.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagða fundaáætlun.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2020
Málsnúmer 2019050308Til umræðu starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2020.
Menningarfélag Akureyrar - beiðni um kaup á búnaði
Málsnúmer 2016110028Erindi dagsett 11. júní 2019 frá Þuríði H. Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk þar sem óskað er eftir kaupum á búnaði.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir því að starfsmenn UMSA yfirfari listann í samráði við MAk og jafnframt verði gerð áætlun um endurnýjun stofnbúnaðar til lengri tíma.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019020025Lagt fram til kynningar 7 mánaða rekstraryfirlit.
Upplýsingastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Farið yfir aðgerðaáætlun upplýsingastefnu.
Í ljósi þess að tímamörk allra verkefna hafa ekki staðist óskar stjórn Akureyrarstofu eftir því að vef- og samfélagsmiðlastefna verði tilbúin 31. desember 2019 og leiðbeiningar um samskipti við fjölmiðla 1. október 2019.
Fylgiskjöl
Rekstur kaffihúsa í stofnunum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2019080451Lagt fram minnisblað sviðsstjóra samfélagssviðs vegna reksturs á kaffihúsum í stofnunum Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að vísa minnisblaðinu til umræðu í bæjarráði.
Dansverkið Rómeó Júlía - styrkbeiðni
Málsnúmer 2019080466Erindi dags. 5. júlí 2019 frá Hlyni Páli Pálssyni f.h. Íslenska dansflokksins, Listahátíðar í Reykjavík og Þjóðleikhússins þar sem óskað er eftir stuðningi við uppsetningu á dansverkinu Rómeó Júlía sem er samstarfsverkefni þessara aðila á Listahátíð í Reykjavík og á Akureyri á næsta ári.
Stjórn Akureyrarstofu felur deildarstjóra Akureyrarstofu að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Fundargerðir AFE
Málsnúmer 2019040049Fundargerðir AFE nr. 233, 234, 235, 236 og 237 lagðar fram til kynningar.