Kjarasamninganefnd - 6
- Kl. 08:15 - 10:25
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirstarfsmannastjóri ritaði fundargerð
TV einingar - úthlutun haustið 2015
Málsnúmer 2015070065Kynnt tillaga matshóps um úthlutun tímabundinna viðbótarlauna (TV eininga) vegna verkefna og hæfni haustið 2015. Á fund nefndarinnar mættu fulltrúar í matshópnum Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu matshópsins um úthlutun TV eininga til sjö umsækjenda.
Ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 2014070048Kynning á reglum um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa og nefndarmanna. Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fund nefndarinnar undir þessum lið.
Búsetustefna - framkvæmd 2015
Málsnúmer 20150501195. liður í fundargerð velferðarráðs 16. september 2015:
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri og Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri búsetudeildar lögðu fram minnisblað dagsett 16. september 2015 um þróun búsetuþjónustunnar og tillögur að skipulagsbreytingum.
Velferðarráð samþykkir að breyta stöðu verkefnisstjóra yfir í forstöðumann stoðþjónustu. Lagðar voru fram fimm aðrar tillögur sem allar voru samþykktar.Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns stoðþjónustu verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.
Kjarasamninganefnd felur starfsmannastjóra að taka saman upplýsingar um þróun fjölda stöðugilda forstöðumanna hjá Akureyrarbæ frá árinu 2006.Tímabundið tilraunaverkefni
Málsnúmer 2015090067Kynnt erindi dagsett 4. september 2015 frá Hildi Óladóttur aðstoðarleikskólastjóra á Pálmholti þar sem óskað er eftir heimild fyrir tímabundnu tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti veturinn 2015-2016.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að heimild verði veitt fyrir tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti til vors 2016.
Kjarasamninganefnd óskar eftir að fá í febrúar 2016 stöðuskýrslu um reynslu af verkefninu, sem byggir m.a. á könnun meðal starfsmanna.Kerfisbundin endurskoðun starfsmats
Málsnúmer 2015070059Kynnt niðurstaða kerfisbundinnar endurskoðunar starfsmats sveitarfélaga.