Íþróttaráð - 124
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 124
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Þorvaldur Sigurðsson
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Bergur Þorri Benjamínssonáheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Örvar Sigurgeirssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda
Málsnúmer 2006040018Endurskoðun á úthlutunarreglun fyrir niðurgreiðslu þátttökugjalda barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi á Akureyri.\nGuðmundur Árnason frá Dynax kynnti Nóra, rafrænt þjónustukerfi fyrir hvatapeninga.\nKatrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdarstjóri samfélags- og mannréttindadeildar sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Guðmundi Árnasyni fyrir kynninguna.

Íþróttaráð samþykkir að hækka aldursviðmið barna vegna niðurgreiðslu þátttökugjalda í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi um tvö ár. Niðurgreiðslan mun gilda fyrir börn á aldrinum 6-13 ára.

Starfsáætlun íþróttaráðs 2013
Málsnúmer 2013010128Tillaga að starfs- og fundaráætlun íþróttaráðs fyrir vor/sumar 2013 lögð fram.

Íþróttaráð samþykkir starfs- og fundaráætlun ráðsins fyrir vor/sumar 2013.

Arctic Heli Skiing - þyrluskíðaferðir
Málsnúmer 2013010126Tekið fyrir erindi dags. 5. desember 2012 frá Bergmönnum ehf þar sem þess er farið á leit við íþróttaráð að fá leyfi til að gera tilraun með sölu og markaðssetningu þyrluskíðaferða frá skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.

Íþróttaráð samþykkir erindið gegn því að verkefnið verði unnið í fullu samráði við forstöðumann Hlíðarfjalls.

Grunnskólinn í Hrísey - beiðni um sparkvöll
Málsnúmer 2011110003Erindi móttekið 28. sepember 2012 frá nemendum og aðstandendum Hríseyjarskóla þar sem íþróttaráð er hvatt til að setja upp sparkvöll við skólann.

Íþróttaráð þakkar fyrir erindið og vísar því áfram til skólanefndar Akureyrarbæjar.

Hjólabrettafélag Akureyrar
Málsnúmer 2012110124Erindi frá samfélags- og mannréttindaráði sem á fundi sínum 12. desember 2012 óskaði eftir formlegu samstarfi við íþróttaráð og Hjólabrettafélag Akureyrar um framtíðarlausn á málefnum félagsins og óskar eftir tilnefningum frá íþróttaráði.
Íþróttaráð tilnefnir Tryggva Þór Gunnarsson sem sinn fulltrúa í málefnum Hjólabrettafélags Akureyrar.Íþróttamannvirki Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013010130Hugmyndir um samræmd innkaup á vinnufatnaði fyrir starfsmenn íþróttamannvirkja lagðar fram.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram í samstarfi við forstöðumenn íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar.

Gervigras á æfingaaðstöðu að Jaðri - endurnýting gervigrass í Boganum
Málsnúmer 2013010127Erindi frá Golfklúbbi Akureyrar dags. 5. desember 2012 þar sem óskað er eftir því að komi til þess að skipt verði út gervigrasi á völlum og í húsum bæjarins þá sitji golfklúbburinn að því að fá grasið á æfingaaðstöðu sína að Jaðri.

Íþróttaráð þakkar fyrir erindið og vísar því áfram til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

Aðstaða fyrir Golfklúbb Akureyrar í Íþróttahöllinni - golfhermir
Málsnúmer 2012050172Forstöðumaður íþróttamála kynnti stöðu framkvæmda við aðstöðu GA í Íþróttahöllinni.

Afrekssjóður 2012
Málsnúmer 2012100159Samantekt á afgreiðslu stjórnar Afrekssjóðs á umsóknum sem bárust 2012 lögð fram til kynningar.

KA svæði - gervigrasvöllur
Málsnúmer 2012120333Forstöðumaður íþróttamála kynnti stöðu framkvæmda við gervigrasvöll á svæði KA.

Unglingalandsmót UMFÍ á Akureyri 2015
Málsnúmer 2013010129Forstöðumaður íþróttamála kynnti fyrirhugað samstarf Ungmennafélags Akureyrar, Akureyrarbæjar og UMFÍ vegna Unglingalandsmóts UMFÍ á Akureyri 2015.