Íþróttaráð - 188
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 188
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð
Málsnúmer 2014080009Lögð fram til kynningar samantekt Karls Guðmundssonar yfir rekstur Sundlaugar Akureyrar 2008-2015. Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar mætti á fundinn undir þessum lið.
Golfklúbbur Akureyrar - veðsetning á golfskálanum á Jaðri
Málsnúmer 2016030024Lögð fram til kynningar afgreiðsla bæjarráðs á erindi Golfklúbbs Akureyrar.
Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA
Málsnúmer 2015110251Lögð fram drög að endurnýjun rekstrarsamninga við Þór og KA.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að samningum við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar og felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að ljúka samningaviðræðum við félögin í samræmi við umræður á fundinum.
Íþróttabandalag Akureyrar - samskipta- og samstarfssamningur Akureyrarbæjar og ÍBA
Málsnúmer 2015010126Lagðar fram til kynningar upplýsingar um vinnu við endurnýjun samskipta- og samstarfssamnings milli Akureyrarbæjar og ÍBA.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að vinna málið áfram.
Skíðalyfta í Hlíðarfjall
Málsnúmer 2016030107Tekið fyrir ódagsett erindi frá Vinum Hlíðarfjalls um kaup á skíðalyftu.
Íþróttaráð þakkar Vinum Hlíðarfjalls áhugann og vinnuna sem þeir hafa sýnt uppbyggingu í Hlíðarfjalli.
Mikil vinna hefur verið í gangi í aðgerðarhópi um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar og á meðan á þeirri vinnu stendur hefur íþróttaráð ekki heimild til að bæta í rekstur Hlíðarfjalls.
Íþróttaráð vísar erindinu til bæjarráðs.Sumarstarfsemi í Hlíðarfjalli
Málsnúmer 2016030001Hugmyndir sem bárust um sumarstarfsemi í Hlíðarfjalli kynntar.
Íþróttaráð þakkar hugmyndasmiðum fyrir góðar og áhugaverðar tillögur.
Íþróttaráð hrósar Yrki Arkitektum fyrir flotta framtíðarsýn á svæðið.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að vinna áfram að brautargengi hugmynda Zalibunu um sleðabraut í Hlíðarfjalli.Skautahöllin - endurnýjun á svelli - aðkoma VMÍ
Málsnúmer 2015020134Íþróttaráð óskaði eftir því á fundi sínum 19. nóvember 2015 að VMÍ tæki þátt í uppbyggingu og framkvæmdum í Skautahöllinni. Svar stjórnar VMÍ dagsett 1. febrúar 2016 við ósk íþróttaráðs lagt fram til kynningar.
Íþróttaráð óskar eftir því að stjórn VMÍ endurskoði ákvörðun sína varðandi þátttöku VMÍ í uppbyggingu og framkvæmdum Akureyrarbæjar í Skautahöllinni.
Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur
Málsnúmer 2014050114Umræður um rekstrarform Hlíðarfjalls.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að hefja undirbúning á úthýsingu rekstrar Hlíðarfjalls.