Stjórn Akureyrarstofu - 178
- Kl. 16:15 - 17:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 178
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Elvar Smári Sævarsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Íþróttafélagið Þór - styrkbeiðni vegna þrettándagleði 2015
Málsnúmer 2014120051Íþróttafélagið Þór verður 100 ára á næsta ári. Af því tilefni vill félagið gera árlega þrettándagleði sína sérstaklega vel úr garði og sækir um 300.000 kr. styrk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita Íþróttafélaginu Þór 200.000 kr. styrk vegna viðburðarins.
Samstarfssamningar um menningarmál
Málsnúmer 2014120052Margir samstarfssamningar um menningarmál renna út um áramótin.\nLagt var fram til kynningar yfirlit yfir samstarfssamninga um menningarmál.
Reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri
Málsnúmer 2005080075Akureyrarbær hefur komið á laggirnar vinnuhópi til að endurskoða reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri. Akureyrarstofa á að skipa einn fulltrúa í vinnuhópinn.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna menningar- og viðburðafulltrúa Akureyrarstofu sem fulltrúa sinn í nefndinni.
Stofnun sjóðs til kaupa á listaverkum
Málsnúmer 2014120053Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og formanni stjórnar var falið að ræða við Fasteignir Akureyrarbæjar um að leggja grunn að sjóði til listaverkakaupa.