Bæjarráð - 3765
- Kl. 08:15 - 10:40
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3765
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Gunnar Gíslason
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Jón Þór Kristjánssonfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022 - viðauki
Málsnúmer 2021030524Lagður fram viðauki 2.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðauka 2 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Ásthildur Sturludóttir mætti til fundar kl. 9:26
Mannauðsstefna - endurskoðun 2022
Málsnúmer 2022020096<br />
Umfjöllun um tillögu að endurskoðaðri mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að vísa mannauðsstefnunni með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Reglur um ábyrgðarmörk og starfshætti - endurskoðun 2022
Málsnúmer 2022031238Umfjöllun um reglur um ábyrgðarmörk stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að gera tillögur að breytingum á reglunum og leggja fyrir bæjarráð.
Fylgiskjöl
Starfslaun listamanna 2022
Málsnúmer 2022030986Lögð fram tillaga faghóps um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2022.
Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu en tilkynnt verður um valið á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.
Byggingalistaverðlaun Akureyrar 2022
Málsnúmer 2022031219Lögð fram tillaga um viðurkenningarhafa. Tilgangur með veitingu byggingalistaverðlauna Akureyrar er að vekja athygli á góðri byggingalist, auka þekkingu og skilning á gæðum bygginga og vera þannig hvati til góðra verka.
Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu en tilkynnt verður um viðurkenningarhafa á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.
Menningarsjóður Akureyrar 2022 - heiðursviðurkenningar
Málsnúmer 2022020273Farið yfir tillögur um veitingu heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs en þær eru veittar einstaklingum sem hafa með störfum sínum og verkum lagt mikið til menningar- og félagsstarfs í bænum.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu en tilkynnt verður um viðurkenningarhafa á Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.
Listaverkakaup
Málsnúmer 2006090067Liður 5 í fundargerð listasafnsráðs dagsettri 22. mars 2022:
Kaup á listaverkum fyrir Listasafnið á Akureyri. Þar sem listasafnsráð annast kaup listaverka til Listasafnsins á Akureyri í samræmi við fjárheimildir í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar óskar ráðið eftir afgreiðslu bæjarráðs á umræddum fjárheimildum vegna ársins 2022.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur forstöðumanni atvinnu- og menningarmála að vinna drög að samþykkt um listskreytingar og listaverkakaup á vegum Akureyrarbæjar og leggja fyrir bæjarráð.
Styrktarsjóður EBÍ 2022
Málsnúmer 2022031096Erindi dagsett 24. mars 2022 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ) varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ 2022. Aðildarsveitarfélag sendir aðeins inn eina umsókn sem skila ber á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Vakin er athygli á því að í reglum úthlutunarsjóðs er kveðið á um að sveitarfélag geti að öllu jöfnu ekki fengið úthlutað styrk tvö ár í röð. Umsóknarfrestur er til aprílloka.
Bæjarráð hvetur ráð og svið bæjarins til að skoða verkefni sem falla undir reglur sjóðsins og senda tillögu til bæjarstjóra fyrir 25. apríl nk.
Fylgiskjöl
Íslenskt handverk - styrkbeiðni til bæjarráðs
Málsnúmer 2022030957Erindi dagsett 17. mars 2022 frá Sigrúnu Steinarsdóttur Ellertsen fyrir hönd Íslensks handverks þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær styrki uppbyggingu starfsemi félagsins í formi húsnæðis eða fjárframlags.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Fylgiskjöl
Hafnasamlag Norðurlands - aðalfundur 2022
Málsnúmer 2022031068Aðalfundur Hafnasamlags Norðurlands bs. verður haldinn í hafnarhúsinu við Fiskitanga miðvikudaginn 27. apríl nk. kl 15:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.
Fylgiskjöl
Frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), 450. mál
Málsnúmer 2022031097Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. mars 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), mál 450 2022.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 6. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/152/s/0649.htmlTillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030, 418. mál
Málsnúmer 2022031101Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. mars 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030, 418. mál 2022. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 6. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/152/s/0597.html