Bæjarstjórn - 3506
- Kl. 16:00 - 16:07
- Fjarfundur
- Fundur nr. 3506
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirforseti bæjarstjórnar
- Andri Teitsson
- Hlynur Jóhannsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Gunnar Gíslason
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Heimir Haraldsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga v. farsóttar af völdum COVID-19
Málsnúmer 2022020532Vegna farsóttar af völdum COVID-19 hefur innviðaráðherra 2. febrúar sl. auglýst eftirfarandi ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:
Til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga er öllum sveitarstjórnum heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér tímabundin frávik frá ákvæðum samþykkta þeirra um stjórn sveitarfélaga, sem mæla fyrir framkvæmd fjarfunda, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum með rafrænum hætti.
Heimild þessi öðlast þegar gildi og gildir til 31. mars 2022.Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum bæjarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Heimildin gildir til 31. mars 2022.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024 - viðauki
Málsnúmer 2020030454Liður 1 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 3. febrúar 2022:
Lagður fram viðauki 7.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir viðauka 7 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.Bæjarstjórn samþykkir viðauka 7 með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl
Óseyri 1 - umsókn um breytingu á skipulagi
Málsnúmer 2022020242Liður 7 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. febrúar 2022:
Erindi Kristjáns Páls Hrafnkelssonar dagsett 3. febrúar 2022 fyrir hönd Módelhúsa ehf. þar sem óskað er eftir tilfærslu á vestari lóðarmörkum Óseyrar nr. 1. Suðvesturhorn lóðar yrði fært til vesturs um 7 m og norðvesturhorn lóðar yrði fært til austurs um 7 m. Nýtingarhlutfall lóðar yrði aukið úr 0,38 í 0,5. Byggingarreitur merktur A á gildandi deiliskipulagi yrði stækkaður til norðurs þannig að koma mætti fyrir 2000 m² byggingu. Þá yrði bílastæðum innan lóðarinnar fjölgað í 80-90 stæði í stað 71 samkvæmt gildandi skipulagi.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts til samræmis við erindið og að breytingin verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þórhallur Jónsson kynnti tillögu skipulagsráðs.Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að gerð verði breyting á deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts til samræmis við erindið og að breytingin verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2022010392Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.