Íþróttaráð - 174
- Kl. 14:00 - 16:16
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 174
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Guðrún Þórsdóttir V-lista boðaði forföll og Alfa Dröf Jóhannsdóttir mætti til fundar í hennar stað. <br /> <br />
Lögð fram drög að gjaldskrá Skíðastaða í Hlíðarfjalli fyrir veturinn 2015-2016. Unnið að fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2016 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2016-2019.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Skíðastaða mætti á fundinn undir þessum lið.Íþróttaráð samþykkir gjaldskrá fyrir Skíðastaði í Hlíðarfjalli fyrir veturinn 2015-2016.
Verkefnastjóri tómstunda og íþrótta fyrir fatlað fólk á Akureyri
Málsnúmer 2015090062Forstöðumaður íþróttamála kynnti hugmynd að ráðningu verkefnastjóra sem hefði það hlutverk að þróa tómstundir og íþróttir fyrir fatlað fólk á Akureyri. Lagt er til að verkefnastjórinn heyri undir samfélags- og mannréttindadeild og að 50% staða verkefnastjóra félagslegrar liðveislu á búsetudeild myndi renna saman við þetta nýja starf.
Erindinu frestað.
Vetraríþróttamiðstöð Íslands - ársreikningur
Málsnúmer 2015090047Ársreikningur VMÍ 2014 lagður fram til kynningar.
Kraftlyftingafélag Akureyrar og Íþróttafélagið Draupnir - framtíðarhúsnæði
Málsnúmer 2015070094Tekið fyrir aftur erindi frá formanni ÍBA dagsett 9. júní 2015 þar sem fjallað er um framtíðarhúsnæði fyrir Draupni og KFA.
Fulltrúi ÍBA og forsvarsmenn félaganna mættu á fund íþróttaráðs undir þessum lið. Málið var síðast á dagskrá íþróttaráðs 19. ágúst 2015.Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála og formanni að vinna málið áfram.
Íþróttaráð þakkar Þóru Leifsdóttur framkvæmdarstjóra ÍBA, Grétari Skúla Gunnarssyni formanni KFA og Hans Rúnari Snorrasyni formanni Draupnis fyrir komuna á fundinn.Þórunn Sif Harðardóttir D-lista vék af fundi kl. 15:51.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 15:58.