Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 272
- Kl. 15:15 - 16:25
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 272
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Lagður fram til kynningar hönnunarsamningur við Kurt og Pí ehf dagsettur 3. desember 2015.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samninginn með fjórum atkvæðum gegn einu.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista greiddi atkvæði á móti og óskar bókað:
"Ég tel það ekki tímabært að skrifa undir þennan samning. Ég tel að pólitísk umræða hafi ekki farið fram í þessu máli með eðlilegum hætti. Skyndilega er orðin mikil áhersla á að tengja núverandi húsnæði Listasafnsins við Ketilhúsið með tengibyggingu (brú). Ég tel að áður en farið verði í þessar framkvæmdir sé rétt að pólitísk umræða hafi farið fram í bæjarfélaginu varðandi þá kúvendingu sem átt hefur stað í málefnum Listasafnsins á undanförnum mánuðum."
Stöðuskýrslur FA 2015
Málsnúmer 2015040077Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 9 fyrir stjórn FA dagsett 14. desember 2015.
Skautahöllin - nýtt svell
Málsnúmer 2015020134Lögð fram tillaga verkefnisliðs samkvæmt fundargerð dagsett 10. desember 2015 um að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun á svelli.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að bjóða út framkvæmdirnar.
Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara
Málsnúmer 2014080046Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina.
Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Málsnúmer 2015120126Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framkvæmdanna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Helenu Þuríði Karlsdóttur S-lista í verkefnisliðið og óskar jafnframt eftir tilnefningu fulltrúa frá íþróttaráði og Íþróttafélögunum Þór og KA.
Verkfundargerðir FA 2015
Málsnúmer 2015010093Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Listasafn endurbætur - 7. fundur verkefnisliðs dagsettur 10. desember 2015.