Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 721
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 721
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Langholt 1 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2017110110Erindi dagsett 24. apríl 2019 þar sem Aðalsteinn Snorrason fyrir hönd Reita-verslunar ehf., kt. 530117-0650, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum húss nr. 1 við Langholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalstein Snorrason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Geirþrúðarhagi 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019040186Erindi dagsett 9. apríl 2019 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd HeiðGuðByggis ehf., kt. 610711-0570, sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 2 við Geirþrúðarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Dalsgerði 4 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2019050046Erindi dagsett 24. apríl 2019 þar sem Siguróli M. Sigurðsson, fyrir hönd Dalsgerðis 4, húsfélags, kt. 640797-2079, sækir um leyfi til að gera bílastæði inn á lóð íbúða húss nr. 4 við Dalsgerði. Bílastæði með möguleika á rafhleðslu komi vestan megin við húsið, eitt bílastæði við íbúð A og D, en tvö við íbúð B og C, með aðkomu frá Dalgerði. Sjá meðfylgjandi myndir.
Byggingarfulltrúi samþykkir eitt þriggja metra breytt bílastæði við hverja íbúð, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.