Kjarasamninganefnd - 1
- Kl. 12:30 - 13:15
- Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Guðrún Karitas Garðarsdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Eining-Iðja - matar- og kaffitímar starfsmanna í tímavinnu
Málsnúmer 2018060414Lögð fram tillaga um tímabundna framlengingu á samkomulagi Akureyrarbæjar við Einingu-Iðju sem samþykkt var á fundi kjarasamninganefndar 30. október 2018. Um er að ræða samkomulag vegna tímavinnustarfsmanna sem ganga vaktir á vaktavinnustöðum.
Kjarasamninganefnd samþykkir að framlengja samkomulagið til 1. nóvember 2020.
Stjórnendaálag forstöðumanna
Málsnúmer 2017010057Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að útbúa tillögur að breytingum á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Stjórnendaálag deildarstjóra
Málsnúmer 2017010004Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd telur ekki ástæðu til að gera breytingar á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra.
Stjórnendaálag
Málsnúmer 2020020483Kynnt tillaga um tímabundna heimild til greiðslu stjórnendaálags vegna afleysingar.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu.