Bæjarráð - 3862
- Kl. 08:15 - 09:03
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3862
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttirvaraformaður
- Hlynur Jóhannsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
Endurskoðun ársreikninga Akureyrarbæjar - útboð
Málsnúmer 2024070794Lagt fram minnisblað dagsett 12. september 2024 varðandi útboð endurskoðunar ársreikninga Akureyrarbæjar og tengdra stofnana. Tilboð bárust frá fjórum aðilum.
Den Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að semja við KPMG hf. um endurskoðun ársreikninga Akureyrarbæjar til næstu fimm ára og vísar málinu til bæjarstjórnar skv. 8. tölulið 58. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Skógarlundur - beiðni um viðauka
Málsnúmer 2024081621Liður 5 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 11. september 2024:
Til að mæta þjónustuþörf nýrra skjólstæðinga og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar er óskað eftir að velferðarráð samþykki viðauka upp á kr. 7 milljónir fyrir árið 2024.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2024 að fjárhæð kr. 7 milljónir vegna málsins og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðaukann.
Barnamenningarhátíð 2025
Málsnúmer 2024090963Umræða um hvort leggja skuli til grundvallar sérstakar áherslur við mat á umsóknum í barnamenningarsjóð vegna hátíðarinnar á næsta ári.
Jafnframt er lögð fram tillaga að breytingu á dagsetningu í verklagsreglum Barnamenningarhátíðar, sem hér segir:
Í 7 gr. segir:
Í ágúst er hægt að nálgast rafræna umsókn í íbúagátt Akureyrarbæjar og er umsóknarfresturinn 10 vikur.
Lagt er til að þetta breytist í:
Í síðasta lagi þann 1. október verður opnað á rafræn umsóknareyðublöð í þjónustugátt Akureyrarbæjar og er umsóknarfresturinn 10 vikur.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og Elísabet Ögn Jóhannsdóttir verkefnastjóri menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á verklagsreglum Barnamenningarhátíðar.
Fylgiskjöl
Þjónustusamningur um rekstur almenningsbókasafns
Málsnúmer 2024090752Lagt fram erindi dagsett 13. september 2024 þar sem Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri f.h. sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps óskar eftir því að hefja viðræður við Akureyrarbæ um þjónustusamning vegna reksturs almenningsbókasafns. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur ákveðið að loka almenningsbókasafni sveitarfélagsins frá og með 1. nóvember 2024.
Bæjarráð samþykkir að hefja viðræður við Svalbarðsstrandarhrepp og felur bæjarlögmanni að vinna málið áfram.
Fylgiskjöl
Samtök orkusveitarfélaga - aðalfundur 2024
Málsnúmer 2022100367Erindi dagsett 10. september 2024 þar sem Gréta Mar Jósepsdóttir f.h. Samtaka orkusveitarfélaga boðar til aðalfundar 9. október næstkomandi kl. 13. Í kjölfar aðalfundar verður svo Orkufundur samtakanna haldinn.
Ef sveitarfélög hafa áhuga á að ganga í Samtök orkusveitarfélaga þarf að senda erindi þess efnis til stjórnar samtakanna þannig að hægt sé að taka erindið fyrir á aðalfundi.Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Fylgiskjöl
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2024
Málsnúmer 2024010315Lögð fram til kynningar fundargerð 65. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra frá 4. september 2024.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2024
Málsnúmer 2024010317Lögð fram til kynningar fundargerð 951. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. ágúst 2024.
Fylgiskjöl