Velferðarráð - 1390
- Kl. 14:00 - 15:56
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 1390
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Andrea Laufey Hauksdóttirfundarritari
Stuðningsþjónustan - húsnæðismál
Málsnúmer 2023100303Umræða um húsnæðismál stuðnings- og stoðþjónustu velferðarsviðs.
Elfa Björk Gylfadóttir forstöðumaður og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sátu fundinn undir þessum lið.Sveitarfélagið er í viðræðum við ríkið og HSN um uppbyggingu á húsnæði fyrir stuðnings- og stoðþjónustuna samhliða nýrri heilsugæslu, ekki er gert ráð fyrir að stuðnings- og stoðþjónustan fari í íþróttahöllina og því má taka það verkefni út af framkvæmdaáætlun.
Velferðarráð lýsir yfir ánægju með þróun mála og leggur áherslu á að þetta verkefni verði unnið hratt og vel áfram.Fjárhagsaðstoð 2024
Málsnúmer 2024031217Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á fyrstu sjö mánuðum ársins. Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Skógarlundur - beiðni um viðauka
Málsnúmer 2024081621Til að mæta þjónustuþörf nýrra skjólstæðinga og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar er óskað eftir viðauka.
Ragnheiður Júlíusdóttir forstöðumaður og Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024
Málsnúmer 2024031216Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur málaflokka velferðarráðs fyrstu sex og sjö mánuði ársins. Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Starfsáætlun velferðarsvið 2025
Málsnúmer 2024081611Lögð fram drög að starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2025.