Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 995
- Kl. 13:00 - 13:40
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 995
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Gránufélagsgata 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024100696Erindi dagsett 18. október 2024 þar sem Kári Magnússon fh. Stefáns Ármanns Hjaltasonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir nýbyggingu íbúðarhúss og endurbyggingu á núverandi húsi á lóð nr. 22 við Gránufélagsgötu. Innkomin ný gögn dagsett 20. nóvember 2024 eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Gleráreyrar 1, rými 15, Skor - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024061639Erindi dagsett 25. júní 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fh. Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á rými 15 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Innkomin ný gögn dagsett 22. nóvember 2024 eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Helgamagrastræti 15 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024111234Erindi dagsett 27. nóvember 2024 þar sem Þórir Guðmundsson fh. Önnu Maríu Hallgrímsdóttur sækir um að breyta bílgeymslu á lóð nr. 15 við Helgamagrastræti í snyrtistofu og geymslu. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.