Umhverfis- og mannvirkjaráð - 96
- Kl. 08:15 - 10:35
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 96
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Compact of Mayors - verkefni umhverfis- og mannvirkjasviðs
Málsnúmer 2018020409Kynning frá Stefáni Gíslasyni framkvæmdastjóra Environice, ráðgjafarfyrirtæki á sviði umhverfismála og sjálfbærrar þróunar, á árangri Akureyrarbæjar í loftslagsmálum.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Jón Þór Kristjánsson verkefnisstjóri upplýsingamiðlunar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
SVA - leiðakerfi 2020
Málsnúmer 2020020042Minnisblað dagsett 10. mars 2021 varðandi nýtt leiðanet SVA.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar, Jón Þór Kristjánsson verkefnisstjóri upplýsingamiðlunar og Daði Baldur Ottósson samgönguverkfræðingur á samfélagssviði EFLU sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir nánari útfærslu og kostnaðargreiningu á nýju leiðaneti og vísar málinu til umræðu í bæjarráði.
Strætisvagnar Akureyrar - kaup á strætisvagni
Málsnúmer 2020110821Minnisblað dagsett 11. mars 2021 varðandi opnun tilboða í útboði um kaup á metan strætisvagni en eitt tilboð barst.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Kletts og ganga til samninga um kaup á metan strætisvagni að upphæð kr. 42.201.890.
Austurbrú og Hafnarstræti - umsókn um skipulag
Málsnúmer 2021020310Kynning varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á reitnum og aðkomu Akureyrarbæjar.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundin undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Glerárdalur - styrkveiting 2021
Málsnúmer 2020050067Lagt fram minnisblað dagsett 10. mars 2021 varðandi áframhaldandi styrk til stígagerðar inn á Glerárdal úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundin undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir ánægju með styrkveitinguna og samþykkir að leggja fram 20% mótframlag að upphæð kr. 4.761.000 og verður fjárhæðin tekin af framkvæmdaáætlun ársins í eignasjóði gatna.