Fræðsluráð - 59
- Kl. 13:30 -
- Fjarfundur
- Fundur nr. 59
Nefndarmenn
- Þorlákur Axel Jónssonformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Daníel Sigurður Eðvaldssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Jóhanna María Agnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Jón Þór Sigurðssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Kolbrún Sigurgeirsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Snjólaug Jónína Brjánsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Therése Möllerfulltrúi leikskólakennara
Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla - skýrsla 2021
Málsnúmer 2021101980Skýrsla um ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla sem gefin var út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í apríl 2021 lögð fram til kynningar. Skýrslan er samstarfsverkefni mennta- og menningarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og 13 sveitarfélaga.
Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar.
Einnig var upplýst að kynning á skýrslunni fari fram þriðjudaginn 9. nóvember á Akureyri.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022
Málsnúmer 2018060500Lagt fram til kynningar:
Lögð fram tillaga M-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði.
Hlynur Jóhannsson verði aðalfulltrúi í stað Rósu Njálsdóttur.
Viðar Valdimarsson verði varafulltrúi í stað Hlyns Jóhannssonar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í fræðsluráði:
Heiðrún Ósk Ólafsdóttir verði varafulltrúi í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Meðfylgjandi er tilkynning um breytingar á áheyrnarfulltrúum í fræðsluráði, Daníel Sigurður Eðvaldsson tekur við af Jóhanni Gunnarssyni sem fulltrúi foreldra grunnskólabarna.Ráðning skólastjóra Tröllaborga
Málsnúmer 2021102300Karl Frímannssom sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir ráðningu í starf skólastjóra Tröllaborga.
Anna Jóna Guðmundsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Tröllaborga frá og með 1. nóvember 2021.
Alls sóttu fjórir um stöðuna.
Anna hefur 18 ára reynslu af stjórnun í leikskólum þar af 14 ár sem leikskólastjóri. Lengst var hún skólastjóri í Ársölum í Skagafirði þar sem hún kom að bæði uppbyggingu á öflugu skólastarfi og innleiðingu margra umbótaverkefna. Hún lauk leikskólakennaraprófi frá Kennaraháskólanum í Tromsö árið 1987 og meistaraprófi frá Háskólanum á Akureyri árið 2012 þar sem hún fjallaði um menntun og tónlist í lokaverkefni sínu.
Fræðsluráð óskar Önnu velfarnaðar í starfi.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2022-2025
Málsnúmer 2021090517Jón Þór Sigurðsson fulltrúi foreldra leikskólabarna vék af fundi kl. 14:51. <br /> <br /> <br />
Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir vinnu vegna hagræðingarkröfu bæjarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna tillögurnar áfram í samræmi við umræður á fundinum.