Bæjarráð - 3730
- Kl. 08:15 - 12:03
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3730
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Gunnar Gíslason
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Stjórnsýslubreytingar 2021
Málsnúmer 2021041274Lögð fram tillaga að breytingum á stjórnskipulagi Akureyrarbæjar ásamt skipuriti.
Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum tillögur að breytingum á stjórnskipulagi Akureyrarbæjar ásamt skipuriti og vísar til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022-2025 - fjárhagsrammi
Málsnúmer 2021030524Lögð fram tillaga að fjárhagsramma fyrir fjárhagsáætlun 2022.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanadeildar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð frestar afgreiðslu.
Fjárhagsáætlun 2022 - samráð öldungaráðs og bæjarráðs
Málsnúmer 2021051547Umræður um fjárhagsáætlun næsta árs og þau verkefni sem lúta að þjónustu við aldraða.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs, Helgi Snæbjarnarson formaður öldungaráðs og Sigríður Stefánsdóttir varaformaður öldungaráðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar fulltrúum öldungaráðs fyrir komuna á fundinn.
Fjárhagsáætlun 2022 - samráð ungmennaráðs og bæjarráðs
Málsnúmer 2021051548Umræður um fjárhagsáætlun næsta árs og þau verkefni sem lúta að þjónustu við ungmenni.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs, Hrafnhildur Guðjónsdóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags og Telma Ósk Þórhallsdóttir og Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúar ungmennaráðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð þakkar fulltrúum ungmennaráðs fyrir komuna á fundinn.
Bæjarsjóður Akureyrarbæjar - yfirlit um rekstur 2021
Málsnúmer 2021050655Lagt fram til kynningar fjögurra mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fundinn undir þessum lið.Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Liður 5 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 9. júní 2021:
Safnastefna Akureyrarbæjar lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir safnastefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til umfjöllunar í bæjarráði.
Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs, Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð frestar afgreiðslu safnastefnunnar og vísar henni til umsagnar öldungaráðs og ungmennaráðs.
Hlíðarfjall - framtíðarstarfsemi og rekstur
Málsnúmer 2020061017Liður 1 í fundargerð stjórnar Hlíðarfjalls dagsettri 17. maí 2021:
Útboðsgögn lögð fram til samþykktar.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir útboðsgögnin fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar þeim til bæjarráðs.
Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 3. júní sl. og var sviðsstjóra samfélagssviðs, bæjarlögmanni og sviðsstjóra fjársýslusviðs þá falið að uppfæra gögnin í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum framlögð útboðsgögn og að útboð á rekstrinum verði auglýst.
Forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti
Málsnúmer 2021060431Erindi dagsett 28. maí 2021 frá forsætisráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög og stofnanir þeirra eru hvött til að taka höndum saman með ábyrgðaraðilum og stýrihópi forsætisráðuneytis og koma aðgerðaáætlun fyrir árin 2021-2025 til framkvæmdar.
Bæjarráð vísar erindinu til samfélagssviðs og fræðslusviðs.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2021
Málsnúmer 2021020095Lögð fram til kynningar fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 31. maí 2021.
Fylgiskjöl