Skólanefnd - 3
- Kl. 13:30 - 15:37
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri
Málsnúmer 2014110138Birna M. Svanbjörnsdóttir forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar HA fór yfir helstu samstarfsverkefni miðstöðvarinnar og skóladeildar.
Fjöldi samstarfsverkefna hefur verið í gangi milli háskólans og skóla Akureyrarbæjar. Meðal þeirra eru:
Byrjendalæsi
Undirbúningur og kynning á Læsi til náms
Innleiðing aðalnámsskrár og leiðsagnarmat
Stærðfræði
Foreldrar og læsi barna
Eineltis- og samskiptamál í skólum
Þróunarverkefni í leikskólum
Mótun lærdómssamfélags á báðum skólastigum
Læsisstefna
Viðhorfakannanir
Endurskoðun skólastefnu
Ráðstefnur
Meðal þeirra verkefna sem framundan er að vinna er að þróa enn frekar lestrar- og læsiskennslu í samræmi við læsisstefnu sem er í mótun, endurskoðun á skólastefnu bæjarins, þróa leiðir til að efla líðan og samskipti í skólum Akureyrarbæjar, efla færni kennara í notkun upplýsingatækni í skólastarfi með nemendum og fleira.Skólanefnd þakkar Birnu fyrir kynninguna.
Auglýsingar í leik- og grunnskólum - viðmiðunarreglur
Málsnúmer 2014010209Sigurbjörg Rún Jónsdóttir verkefnastjóri á skóladeild kynnti verklagsreglur um auglýsingar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Nemendaspá
Málsnúmer 2012030022Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi á skóladeild fóru yfir spá um þróun nemendafjölda í leik- og grunnskólum Akureyrar á næstu 10 árum.
Skólatónleikar og listsýningar í leik- og grunnskólum
Málsnúmer 2015010262Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri kynnti hugmyndir um uppbyggingu skólatónleika og listsýninga í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Fræðslustjóra falið að vinna áfram að málinu.